Úrval - 01.05.1966, Side 78
76
Við spurðum þau hver atvik
hefðu orðið við andlát Brendans
Behan. „Hann var þjáður,“ sagði
Beatrice, „en rænulítill. Samt var
hann jafn hýr og góður ag hann
átti að sér. Ég held að hann hafi
vitað að hann var að deyja.“
„Um hvað var hann þá helzt að
hugsa undir lokin?“ spurðum við.
Móðir hans hugsaði sig um og
sagði svo: „Vesaling Bren minn
sagði okkur aftur og aftur söguna af
því þegar honum var sleppt úr
fangelsinu í Borstal og gerður út-
lægur úr Englandi. Honum voru
fengin föt sem fóru illa, og hann
fór rakleitt frá fangelsinu út að
Liverpool-höfn og þaðan yfir sund-
ið á áætlunarskipinu. Hann sagðist
hafa staðið upp á þilfari þegar skip-
ið sigldi inn flóann Dun Laoghaire,
þar sem skrúðgrænir ásar voru á
báðar hendur, og þegar hann gekk
niður landganginn varð þar fyrir
honum írskur embættismaður sem
ÚRVAL
átti að hafa eftirlit með innflytj-
endum.
„Gerið svo vel að afhenda vega-
bréf eða önnur skilríki, sem segja
til um það hver þér eruð,“ sagði
maðurinn. Brendan sýndi honum
útlegðarskjal sitt. Við það breyttist
heldur en ekki svipurinn á andliti
mannsins, og hann sagði með tár-
í augum (á gelisku) „Vertu marg-
velkominn heim.“
„Og var þetta hið síðasta sem hann
talaði við ykkur?“ spurðum við.
Það sló á vandræðalegri þögn. Svo
tók Stephen Behan pípuna frá
munni sér og sagði: „Nei, raunar
ekki. Síðustu orðin talaði hann við
hjúkrunarkonu, sem hélt um hönd
honum og var að mæla púlsinn.
Hann leit á hana, brosti og sagði:
„Guð blessi þig, systir — og megi
allir synir þínir verða biskupar.“
Beatrice bætti við hugsi: „Skilj-
ið þið nú hvernig á því stendur að
við sjáum eftir honum?“
BRÉFASENDINGAR — 1 GEGNUM SlMA
Hefur þér nokkurn tíma dottið i hug að senda bréf í gegnum síma?
Japanskir vísindamenn hafa búið til tæki, sem nefnist „Telemail"
(Simapóstur), sem gerir slíkt framkvæmanlegt á auðveldan hátt.
Maður velur sér númer, og svo þegar manni er svarað, byrjar maður
að skrifa á sérstaklega útbúið blað í stað þess að kjafta. Og það, sem
maður skrifar, kemur svo samstundis fram á sams konar blaði við
hinn enda símalinunnar.
Japanir álíta ekki, að neinir mundu kæra sig um að hamast við
að skrifa, þegar þeir geta þess í stað rabbað saman, en þeir álíta samt,
að „Telemail" (Símapósturinn) muni verða mikilvægur á ýmsan hátt.
Þegar hann er settur í samband við venjulegan síma, getur hann
hjáipað til þess að skýra ýmislegt það, sem sagt er í símann, einkum
þegar um er að ræða tölur, teikningar eða uppdrætti af ýmsu tagi.
Sunday Express