Úrval - 01.05.1966, Síða 86
84
ÚRVAL
HVERJIR TAKA BERLIN
Þegar herir „Þriðja ríkisins“, sem eitt sinn höfðu verið
svo voldugir, tóku að riðlast og gefast upp, vorið 1945, var
þessari mikilvægu spurningu enn ósvarað: Hverjir tækju
Eerlínarborg, Rússarnir, sem biðu þess albúnir að ráðast að
henni úr austri, eða herir Bandamanna, sem æddu með
furðulegum hraða yfir Þýzkaland úr vestri? Orlög milljóna
manna voru komin undir svarinu, já, framtíð heillar heims-
álfu.
Svar Stalíns í Moskvu var einkennandi fyrir hann. Hann
hafði í frammi baktjaldamakk og blekkingar, bæði gagn-
vart bandamönnum sínum og einnig sínum eigin hershöfð-
ingjum. Djúpstæður ágreiningur var um mál þetta bæði
í Lundúnum og Washington og meðal yfirmanna í herjum
Bandamanna, ágreiningur, sem leit út fyrir að geta jafnvel
splundrað samvinnu Vesturveldanna. Og meðan hinir verð-
andi sigurvegarar reyndu að útkljá misklíðarefni sín, beið
hin þýzka höfuðborg örlaga sinna í nokkurs konar dásvefni,
draumkenndum og óhugnanlegum. Hershöfðingjar Hitlers
gerðu sér grein fyrir því, að allar aðstæður voru gersamlega
vonlausar, en Hitler sjálfur og smjaðrarar þeir, sem næst-
ir honum stóðu, héldu áfram að trúa á þá brjálæðislegu
blekkingu sína, að unnt væri að verja þýzka ríkið.
„Hverjir taka Berlín?“ er annar hluti bókarinnar „Síð-
asta orrustan“ eftir Cornelius Ryan. Bókin var rúm þrjú
ár í undirbúningi og er sannarlega verðug þess að fylgja á
eftir bókinni „Lengstur dagur“, en í henni tókst honum
svo snilldarlega að gæða hina örlagaríku innrásardaga lífi
fyrir lesendur sína. „Hin síðasta orrusta“ bregður á snilld-
arlegan hátt upp myndum af körlum og konum, sem sóp-
ast út í hringiðu hrikalegra atburða.