Úrval - 01.05.1967, Page 60
Svifflug hefur sína töfra bœði
fyrir unga sem gamla.
Margir áhangendur þessarar
íþróttar hafa ekki haft
neina fyrri reynslu sem
flugmenn á vélflugum. Sumir
þeirra eru kawpsýslumenn í
leit að fegðurðinni, menn,
sem þrá það eitt að rísa
hátt upp yfir hið daglega
brauðstrit.
Sá, sem flýgur í svif-
flugu flýgur á þann hátt,
sem manninn hefur allt-
ar dreymt um að fljúga.
í svifflugu . ertu frjáls
eins og fuglinn fljúgandi. Þú getur
svifið upp undir dúnmjúkt, drifhvítt
ský og hjúfrað þig að því og notið
svala þess. Þú getur svifið skyndi-
lega út' í glitrandi sólskinið eða svif-
ið skyndilega frá einu skýi til ann-
ars og virt fyrir sér dýrð þeirra, hin
fjölbreytilegu form, sem breytast í
Þeir svífa
sem fuglar
himinsins
sífellu. Hrifning þín vegna þessa
stórkostlega frelsis er óumræðileg.
Sumt fólk hrópar, syngur eða græt-
ur af gleði, í fyrsta skipti sem það
verður fyrir þessari reynslu.
Ég er flugmaður hjá flugfélagi
og á 22.000 flugtíma að baki við
stjgrnvöl kraftmikillar flugvélar,
sem hefur marga hreyfla. En samt
finnst mér svifflugan alveg dýrðlegt
tæki. Þessi fullkomna, kraftmikla
ílugvél, sem ég stjórna, er bara
flutningatæki, og því eyði ég eins
The Rotarian