Úrval - 01.05.1967, Blaðsíða 73
SJæja, nú hafa fréttirnar
verið opinberlega birtar:
Bifreiðaframleiðendur í
Detroit munu fram-
leiða rafknúinn bíl.
Sýnishorn hafa þegar verið fram-
leidd í tilraunaskyni og er þegar far-
ið að aka þeim í tilraunaakstri. Inn-
an 5-10 ára munu nýju rafmagns-
bílarnir verða komnir á almennan
markað.
Ein helzta ástæðan fyrir þessari
endurkomu rafmagnsbílsins, er loft-
eitrunin þ.e. sívaxandi ský eitraðra
lofttegunda og sóts, sem svífur nú
stöðugt yfir meira en 7000 banda-
rískum stórborgum, borgum og bæj-
um. Og þessi risavaxni, óhreini,
„reykbaugur" er ekki aðeins til leið-
inda. Margir álíta, að hann eigi að
minnsta kosti nokkurn þátt í hinum
sífjölgandi dauðsföllum af völdum
sjúkdóma í öndunarfærum, lungna-
krabbameins, lungnaþembu og
„krónisks bronkítis“ (lungnakvefs).
Benzínvélar valda um helmingi
þessa mikla reyk- og sótmagns í
loftinu. Og ástandið versnar með
hverjum deginum. Sérfræðingar spá
því, að árið 1980 muni bílarnir spúa
frá sér tvöföldu magni þess eiturefn-
is, sem þeir spjóu upp í loftið árið
1960, nema eitthvað sé gert í mál-
inu. Nú er verið að setja útbúnað á
marga bíla til þess að draga úr eitr-
uðum loftútblæstri, og mun þetta
hjálpa mikið til. En það væri jafn-
vel miklu betra, að teknir yrðu í
notkun bílar, sem hefðu alls engan
útblástur. Og helzti frambjóðand-
inn er það hinn hreini, hljóðláti og
einfaldi rafmagnsbíll.
Framleiðendur byrjuðu að gera
tilraunir með framleiðslu slíkra bíla
þegar á árinu 1958. Það, sem þeir
þörfnuðust, var orkugjafi, sem gæti
geymt eða framleitt nægilegt raf-
magn til þess að knýja rafmagnsbíl
áfram alllanga vegalengd, þ. e.
Hvað er að
frétta af nýja
raímagns-
bílnum?
Popular Science Monthley
Ei'tir C. P. Gilmore
Rafknúði bíllinn er alls ekki
ný hugmynd. Hinir
virðulegu rafmagnsbílar
voru vinsælir fyrir um
hálfri öld. En það var
e'cnn geysilegur galli á þeim,
scm réð niðurlöugm þeirra
á þeim tíma. Þeir höfðu
aðeins orku til mjög stutts
aksturs í einu.
þannig að hann yrði hagkvæmur í
rekstri. Og nú er sá bíll kominn:
Hin nýja sodium-brennisteins raf-
hlaða býr yfir fimmtánfaldri orku
hinnar gamalkunnu blýsýruraf-
hlöðu, sem kemur bílnum þínum í
gang á morgnana.
Fyrirtækið Gulton Industries í
Metuchen i New Jerseyfylki hefur
framleitt „lithiumsellu“, sem hefur
tífalda orku blýsýrusellunnar og
mun kannske sá sextugfaldri þeirri
orku, þegar frekari endurbætur hafa
verið gerðar á henni.
Fyrirtækin Leesona Moos Labora-
tories í Great Neck í New York-
fylki og General Atomic Divsion hjá
General Dynamics (þ. e. kjarnorku-
deild þess fyrirtækis) eru nú að
vinna að rannsóknum á kraftmikl-
um zinkloftsrafhlöðum.
Chrysler bílaverksmiðjurnar
vinna nú að því að framleiða eld-
neytissellur, orkugjafa geimaldar-
innar, sem framleiddi raforku í
Geminigeimförunum og mun gera
slíkt hið sama, hvað Apollotungl-
förin snertir. í stað þess að geyma
orku, nota þessar „sellur“ eldsneyti
og breyta því í raforku eftir þörfum.
Því er farið með þær eins og benzín-
vélarnar. „Sellurnar“ framleiða raf-
orku, meðan eldsneytið endist, og
það þarf aldrei að hlaða þær að nýju.
í General Motors-bílaverksmiðj-
unum hefur verið unnið að fram-
leiðslu ýmissa tegunda af rafhlöð-
um og eldneytissellum undanfarið,
og nú er tilraunavörubíll þegar kom-
inn í prófakstur hjá þeim. Hann er
knúinn áfram af 32 þunn-rafskauta-
eldneytissellumódulum, sem fram-
ieiddar hafa verið af Union Carbide
fyrir General Motors. Hver þessara
,sella“ starfar sem rafhlaða. Hún er
Vr, úr þumlungi að þykkt, tekur við
vatnsefni og súrefni og gefur frá sér
rafmagn og vatn. Vörubíllinn er 125
hestafla, getur farið 70 mílur á
71