Úrval - 01.05.1967, Blaðsíða 63
ÞEIR SVÍFA SEM FUGLAR HIMINSINS
61
verður hann að taka skriflegt próf.
Þar er aðeins um að ræða ýmsar
upplýsingar og reglur, sem auðvelt
er að tileinka sér. Og næst fer hann
svo á loft með eftirlitsmanni frá
Flugeftirliti ríkisins (Federal Avia-
ton Agency) eða einhverjum öðr-
um, sem hefur verið útnefndur sem
prófdómari fyrir svifflugmenn. Hann
prófar hinn tilvonandi flugmann,
líkt og maður er prófaður, þegar
maður tekur ökupróf. Maður þarf
jafnvel ekki að fara í læknisskoðun,
nema maður ætli að fá sér tveggja
sæta svifflugu og fara með farþega
á loft með sér. Það er ekki um neitt
leyfisgjald að ræða.
Það eru ekki nærri eins mörg
mælitæki og stjórntæki, sem þarf
að fylgjast með í svifflugu eins og
þegar um flestar litlar vélflugur er
að ræða. Þetta veitir svifflugmann-
inum frelsi til hugleiðinga. Honum
gefst betra færi á að gefa sig á
vald hinni undursamlegu kennd,
sem gagntekur hann, er hann tekur
að svífa og hækka og hækka. Hann
sezt í íága flugmannsklefann, þann-
ig að axlir hans nema við hæð
vængjanna. Hann dregur plast-
skyggni yfir klefann, festir sætis-
beltið og axlaólarnar. Hann lítur á
handfangið á mælaborðinu, sem er í
tengslum við togkaðalinn. Með því
að taka í það, getur hann losað
kaðalinn, sem festur er við flugvél-
ina, sem dregur sviffluguna á loft.
í klefanum eru fótstig, og með
þeirra hjálp getur hann tekið sveigj-
ur og beygjur og stjórnað flughæð-
inni, hækkað og lækkað flugið. Þar
er líka einfalt tæki, sem ber heitið
„variometer", en það skýrir honum
frá því, hvort hann hækki flugið
eða sé farinn að síga niður á við.
Þetta eru tvö hliðstæð rör, annað
með grænni kúlu, en hitt með rauðri.
Einu tækin, sem hann þarf að hafa
auga með, þangað til hann fer að
búast til lendingar aftur, eru flug-
hraðamælir, hæðarmælir og áttaviti.
Maður þarf að láta hendur standa
fram úr ermum, þegar lenda skal
svifflugu. En það er hægt að gera
slíkt af mikilli nákvæmni. Það eru
borð efst á vængjunum, þau eru
um 4 þumlungar á breidd og 3 fet
á lengd. Þau eru kölluð „spoilers."
Með því að taka í handfang, lyftir
flugmaðurinn þeim upp í jafnan
loftstrauminn yfir vængjunum.
Þetta dregur úr hæðarlyftingunni
og hjálpar honum að lækka flugið
og lenda. Undir vængjunum eru
svipuð borð, er vinna sem loft-
bremsur til þess að draga úr flug-
hraðanum. Með þessum stjórntækj-
um er hægt að lenda svifflugum
hvar sem maður kýs. Sunnudag
einn var keppni í svifflugfélaginu
okkar nálægt Philadelphiu. Keppt
var um það, hver gæti lent næst
stað, sem var merktur með gulri
pjötlu. Þeir þrír efstu lentu ótrú-
lega nálægt henni eða allir innan 19
þumlunga fjarlægðar. ?
HÆRRA OG HÆRRA.
Það er ekki alltaf auðvelt að
halda sér á lofti í svifflugu, en það
er rangt, sem margir halda, að svif-
flugan hrapi, ef loftið getur ekki
haldið henni uppi þ. e. ef ekki er
nægilegt uppstreymi. Það tekur svif-
fluguna um 6 mínútur að komast
upp í 2000 feta hæð í togi aftan í