Úrval - 01.05.1967, Page 105

Úrval - 01.05.1967, Page 105
MADAME SARAH 103 Svo opnaði hún sjúkrahúsið sitt. Brátt fór hún svo aftur á stúfana og bar fram nýja bón við lögreglu- stjórann. Veðrið var hráslagalegt og nístingskalt. Þegar hún kom til skrifstofu hans, sat hann í óupphit- aðri skrifstofu sinni í loðfóðruðum yfirfrakka og reyndi af fremsta megni að halda á sér hita. Þegar viðtali þeirra var lokið, hafði Sarah ekki aðeins fengið loforð hans um matvæli og sjúkragögn og lyf handa sjúkrahúsi hennar, heldur var hún líka búin að krækja í yfirfrakkann hans. Hún útskýrði það fyrir honum, að hún þyrfti frakkans nauðsynlega með handa einum af sjúklingunum, sem væri farinn að hafa fótavist, en það biði mjög særður maður eftir að fá rúmið hans. í næsta skipti sem hún hélt á fund lögreglustjórans til þess að betla um matvæli handa sjúkra- húsinu, var hann kominn með bron- kitis. Hann hafði kvefazt svona illi- lega. Og hann lokaði eina, slitna yfirfrakkann, sem hann átti eftir í eigu sinni, inni í fataskáp, áður en hann hóf viðtalið við hana. Og þessi varnaðarorð bárust um alla borg- ina: „Komið ekki nálægt Odéon- leikhúsinu í hlýjum fötum. Sarah Bernhardt rifur þau utan af ykkur handa einhverjum af sjúklingunum sínum.“ Þessi 26 ára gamla, heilsuveila leikkona starfaði nú af slíkum fítonskrafti, að þar var sem væri heiil hópur manna að verki. Hún gengdi hjúkrunarstörfum og aðstoð- aði læknana við erfiðar aðgerðir án þess að blikna eða blána. Hún héit á fati, meðan læknarnir tóku útlim af særðum hermanni eða krukkuðu í hann í leit að kúlum. Hún bjó sjálf um sár, sem lyktuðu langar leiðir af ígerð og drepi. Nú hófst einn harðasti vetur í manna minnum. Borgarbúar börðust örvæntingar- fullri baráttu fyrir lífi sínu. Hún og samstarfsmenn hennar sultu oft heilu hungri, til þess að unnt reynd- ist að fæða sjúklingana. Dag einn var komið inn í sjúkra- húsið með prússneskan fanga. Það var liðsforingi. Þótt hann væri sjálfur alvarlega særður, var hann fullur af rembingi hins prússneska sigurvegara. „Innan 48 stunda mun París gefast upp“, sagði hann hreyk- inn. ,,Við vitum, að þið verðið nú að leggja ykkur til munns rottur og mýs.“ Þetta kvöld færði Sarah Þjóðverjanum kvöldmatinn sjálf. Hún sagði, er hún rétti honum mat- inn: „Nú sjáið þér, hvernig við sveltum, maður minn.“ A bakkan- um var bringa af ljúffengum kjúkl- ingi. Kjúklingurinn var úr einka- hæsnabúi Söru. Hún hafði keypt dá- lítinn hóp af hæsnum og gæsum í byrjun umsátursins og hýsti allan söfnuðinn í búningsherbergi sínu. Dag einn krafðist ungur hermaður inngöngu í Odéonsjúkrahúsið. Þetta var ljóshærður og bláeygður piltur. Hann hafði særzt á vígstöðvunum. Hann sagðist hafa tilbeðið Madomoi- selle Söru í heil tvö ár úr sæti sínu á efstu svölum Odéonleikhússins og krafðist þess nú að fá að komast sem sjúklingur i umsjá hennar. Hann dvaldi ekki lengi í sjúkrahúsi hennar í leikhúsinu, en allan tím- ann fylgdist hann með hverri hreyf- ingu hennar, líkt og honum birtist
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.