Úrval - 01.05.1967, Síða 106
104
ÚRVAL
yfirnáttúruleg sýn. Og þegar átti að
fara að útskrifa hann af sjúkrahús-
inu, bað hann þessa gyðju sína ósköp
feimnislega um áritaða mynd, Sarah
spurði hann þá að fullu nafni.
,,Foch“, svaraði hann, „Ferdinand
Foch.“
Árið 1916 var Sarah aftur tekin til
starfa fyrir hermennina. Þá var hún
orðin gömul og hafði misst annan
fótinn. Hún fór samt inn á skotgrafa-
svæðið án þess að hugsa um öryggi
sitt og skemmti hermönnunum með
upplestri. Þá minnti liðsforinginn,
sem fylgdi henni um svæði þessi,
hana á atburðinn forðum, er ungi
maðurinn í Odéonsjúkrahúsinu hafði
beðið um mynd hinnar frægu leik-
konu. Og liðsforingi þessi var ein-
mitt Foch, sem átti eftir að verða
hermarskálkur og yfirmaður her-
afla Bandamanna í fyrri heimsstyrj-
öldinni.
í síðustu viku umsátursins, sem
var sú nítjánda í röðinni, varð á-
standið svo slæmt, að Sarah neydd-
ist loks til þess að láta sjúkrahús
sitt hætta störfum. Þá dundi stöðug
stórskotahríð á borginni, og hafði
hún því neyðzt til þess að láta
flytja sjúklingana niður í kjallarana
undir leikhúsinu. En þar biðu þess-
ara vesalinga nýjar hörmungar,
sprungnar vatnsleiðslur, flóð frá
skolpræsum og rottusægur sem
hljóp yfir rúm sjúklinganna og
reyndi jafnvel að naga opin sár
þeirra. Þegar sjúkrahúsið hætti loks
störfum, skömmu áður en París féll,
hafði þetta bráðabirgðasjúkrahús
Söru annazt um samtals 150 sjúkl-
inga.
„ÚT VIL EK.“
Þegar fransk-prússneska stríðinu
lauk, hóf Sarah aftur störf sem leik-
kona í Odénleikhúsinu og varð að
lokum óumdeilanleg stjarna með
leik sínum sem drottningin í leik-
ritinu „Ruy Blas“ eftir Victor Hugo.
] lok leiksins var hún klöppuð fram
alveg sérstaklega og gekk þá ein
fram á brún leiksviðsins. Yfir hana
steyptist holskefla persónulegrar
hyllingar. Áhrifin voru sem ölvun.
Um þessa stund skrifar Sarah þessi
orð síðar: „Þegar ég var komin
aftur í herbergið mitt þá nótt, fannst
mér ég vera svo vellrík, að ég var
hrædd við ræningja."
Eftir þennan sigur gat ekki hjá
því farið, að henni yrði boðið að
ganga að nýju í þjónustu Comédie
Francaise. Hún fékk þetta tilboð,
einmitt þegar hún átti í útistöðum
við stjórnendur Odéonleikhússins,
vegna þess að hundurinn hennar,
lítill kjölturakki, sem gekk undir
nafni Hamlet, slepp dag einn út
úr búningsherbergi hennar og æddi
fram á leiksviðið. Leikhússtjórinn
kenndi leikkonunni um atburð
þennan og dæmdi hana í sekt, en
hún neitaði að greiða hana.
„Eruð þér orðin alveg kolbrjáluð?“
hrópaði hann, þegar hún lýsti því
yfir, að hún mundi aldrei greiða
sektina. „Hvað annað leikhús í
París gæti boðið yður slík kjör, sem
þér njótið hér?“
„Kannske Francaise?" svaraði
Sarah spurnarrómi.
Leikhússtjórinn hló upp í opið
geðið á henni, þar eð hann minntist
fyrri viðureignar hennar við þá
stofnun. En þá strunsaði Sarah út
úr skrifstofu hans, hrópaði á vagn