Úrval - 01.09.1969, Page 13

Úrval - 01.09.1969, Page 13
HVAÐ ER FRAMUNDAN í GEIMFERÐUM 11 hægt er að nota aftur, annast vista- flutninga til stöðvarinnar, en við það minnkaði kostnaðurinn við að komast á jarðbraut verulega. Þess- ar geimstöðvar mundu ekki aðeins vera skref áleiðis lengra út í geim- inn, heldur mjög þýðingarmiklar til þess að auka þekkingu okkar á heimahnetti okkar, jörðinni. Þær mundu einnig verða ómetanleg tæki til þess að reyna áhrif langvar- andi geimferða á mannslíkamann, og sem slíkar ómetanlegur undir- búningur hugsanlegra ferða manna til Mars. Um þessar mundir eru fyrstu sjónvarpsmyndirnar sendar frá Mars til jörðu. Menn gera sér góðar vonir um, að þessar myndir geti svarað spurningum, sem enn er ó- svarað um þennan næsta nágranna jarðar. Er raunverulega ís á heim- skautunum þar eins og hér. Er það gróður, sem virðist breiðast út yfir plánetuna jafnóðum og ísinn sýnist minnka? Er raunverulega til líf á Mars? Samkvæmt síðustu fréttum benda myndirnar frá Mars til þess, að ekki sé neitt líf að finna þar. Til þess að fá enn skýrari svör en von er til að fáist nú verða tvö Mariner-geimför send til Mars 1971, og 1972 er ráðgert að tvö geimför af gerðinni Víkingur verði látin lenda þar og róta í yfirborðinu. En þá verður eftir að senda þangað menn og jafnframt því sem þetta gerist verður geimstöðin umhverfis jörð farin að þjálfa menn í lang- varandi þyngdarleysi. Önnur vandamál virðast óleysan- legri, og þó verður það erfið hnota að brjóta að finna leiðir til þess að sjá mönnum fyrir nægu lofti, vatni og mat á svo langri leið. Þetta telja vísindamenn að megi leysa. DUBRIDGE-SKÝRSLAN En þótt hugað sé að ferðalögum til Mars í framtíðinni er ekki víst að neitt ofurkapp verði lagt á það markmið. Nixon Bandaríkjaforseti mun á næstunni fá til meðferðar skýrslur, sem nefnd undir forsæti dr. Lee Dubridge ráðunautar for- setans um vísindamál er að taka saman. Þangað til þessar skýrslur Dubridge liggja fyrir er ekki vitað hvað verður næst tekið fyrir, en búizt er við að nefndin hafi skilað skýrslunum í september. Og geimvísindamennirnir sjálfir gera sér engar vonir um að Dub- ridge komist að þeirri niðurstöðu að hraða beri landtöku manna á Mars. Þvert á móti sagði sjálfur 'Wherner von Braun nýlega í viðtali, að hann byggist við að þar verði mælt með því að halda áfram sendingu ómann- aðra geimfara til fjarlægra hnatta og sendingu ómannaðra geimfara á braut umhverfis jörð og megin- áherzla verði lögð á að afla vísinda- legra upplýsinga. Mannaðar geim- ferðir á næstu árum verði fyrst og fremst farnar til að kanna hvernig menn eiga að fara að því að lifa og starfa langtímum saman í geimn- um. En þótt svo fari jafnvel að ekki verði minnzt á Mars í skýrslunni, þá getur þessi undirbúningur komið að góðu haldi við ferðir þangað síð- ar, jafnvel þótt sjónum manna verði um sinn fremur beint að jörðinni sjálfri en stjörnunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.