Úrval - 01.09.1969, Blaðsíða 103
BARNI LINDBERGS RÆNT
101
inu á öruggum stað, þar til við fá-
um peningana Hvernig má
vera, að Lindberg fari eftir svona
mörgum röngum upplýsingum?
Hann veit vel, að við erum þeir
réttu. Ef hann heldur áfram að
bíða, tvöföldum við greiðsluna."
Condon var á þeirri skoðun, að
ræningjarnir gætu fallizt á að af-
henda drenginn samtímis því að fá
peningana afhenta, en Lindberg
krafðist þess, að birt yrði orðsend-
ing, sem viðurkenndi, að fallizt
væri á allar kröfur Johns. Hann
þorði ekki að draga aðgerðir á
langinn af ótta við, að glæpamenn-
irnir misstu þolinmæðina.
Hin nýja tilkynning kom í blað-
inu fimmtudaginn 31. marz. Og
daginn eftir tók Condon móti svari
Johns:
Látið okkur vita, hvort þér
séuð tilbúinn til að koma hlut-
unum í kring á laugardagskvöld.
Ef svo er, þá auglýsíð: Já, allt
er í lagi.
Mesta áhyggjueíni L:ndbergs var
nú, að eitthvað yrði til þess að
skjóta ræningjunum skelk í bringu
áður en til skarar ætti að skríða
næsta kvöld. Þegar maður einn frá
opinberum aðilum tilkynnti hon-
um, að lögreglan vildi ekki blanda
sér í málið nema raðnúmer pen-
ingaseðlanna væru skrifuð niður,
þá andmælti Lindberg.
En loks dróst hann á að verða við
þessari ósk lögreglunnar. En hann
setti einbeittlega fram þá kröfu á
móti, að hvorki njósnarar ellegar
nokkurskonar gildrur mættu fyrir-
finnast í nágrenni stefnumótsstað-
arins.
Síðla laugardags höfðu þeir Lind-
berg og Condon lagt síðustu hönd
á undirbúning afhendingu lausnar-
fjárins. Peningunum var komið
fyrir í tveim pappírsbögglum. Ann-
ar hafði að geyma 50 þúsund dali í
gulltryggðum pappírum og seðlum,
útgefið af Alríkisbankanum. í hin-
um pakkanum voru 20 þúsund dal-
ir í seðlum. Alls voru seðlarnir 5150
talsins og skiptust í fimmdala-,
tíudala-, tuttugudala- og fimmtíu-
dala-seðla, og var það með mestu
naumindum, að hægt reyndist að
troða öllu þessu seðlamagni niður
í trékassann, sem Condon hafði út-
vegað til þess arna.
Meðan þeir Condon, Lindberg og
Breckinridge biðu nánari fyrirmæla
frá John — en hann hafði sem fyrr
segir beðið um, að allt yrði tilbúið