Úrval - 01.09.1969, Side 52

Úrval - 01.09.1969, Side 52
50 ÚRVAL ein nýlenda kynni að verða á móti yfirlýsingunni, gæti slíkt verið mjög hættulegt og leitt til ósamlyndis síð- ar meir og jafnvel örlagaríkrar sundrungar nýlendnanna. Fulltrúar New York lýstu því í samræðum sínum við sjálfstæðis- sinna, að þeir væru í rauninni hlyntir yfirlýsingunni. En þeir sögðust hafa fengið sérstök fyrir- mæli um það að heiman, að þeir skyldu ekki greiða atkvæði með henni. Þeir ætluðu því að sitja hjá enn á ný. Þá var aðeins Pennsylvania eftir. John Dickinson barðist við rödd samvizkunar tímunum saman. Hon- um varð því ekki svefnsamt. Robert Morris, einn helzti stuðningsmaðm- hans frá Pennsylvaniu, hafði hvatt hann til þess að láta undan vilja meirihlutans. En Dickinson, sem var einlægur kvekari, gat ekki greitt því atkvæði, að samlandar hans yrðu að þola styrjaldarhörmungar hvað sem vilja meirihlutans leið. Hann sendi því þau skilaboð til Roberts Morris, að hann mundi ekki mæta á þingfundi þ. 2. júlí, heldur halda kyrru fyrir í herbergjum sín- um. Hann bætti því við, að kanske ætti Morris að gera slíkt hið sama. Þetta þýddi, að þá mundu aðeins 5 fulltrúar frá Pennsylvaniu mæta á þingfundinum. Tveir þeirra voru sjálfstæðissinnar, en tveir á móti. John Morton, sá fimmti, var óá- kveðinn. ÞAÐ BIRTIR YFIR 2. dagur júlímánaðar rann upp. Það rigndi og var svalara en áður. Þing- fulltrúar örkuðu um leirugar göt- urnar í áttina til þinghússins. Þeir tóku strax eftir fjarveru þeirra Dickinsons og Morris. En sjálfstæð- issinnum gerðist órótt, er þeir tóku eftir því, að það vantaði enn einn fulltrúa, Caesar Rodney frá Dela- ware. Hafði hraðboðinn brugðizt þeim? John Hancock þingforseti frestaði atkvæðagreiðslunni allan morguninn og fram eftir degi. Hon- um tókst það með því að fá þing- fulltrúum önnur mál að fjalla um. En að lokum gat hann ekki frestað atkvæðagreiðslunni lengur. Charles Thomson ritari kallaði nú nöfn fulltrúanna hvert af öðru og bað þá að greiða atkvæði um sjálf- stæðisyfirlýsinguna. Hin 9 jáyrði frá deginum áður, sem nú voru endur- tekin, vöktu enga sérstaka athygli. Fulltrúar New York lýstu kurteis- lega yfir því, að þeir sætu hjá við atkvæðagreiðsluna. Atkvæði Penn- sylvaniu skiptust, þ.e. 2 á móti 2, þangað til John Morton reis á fæt- ur, lasburða af völdum sjúkdóms þess, sem hann átti eftir að deyja úr nokkrum mánuðum síðar. Morton óttaðist yfirvofandi styrj- öld eins og John Dickinson. Fyrir mánuði hafði hann sagt: „Baráttan er hryllileg... foreldrar gegn börn- um — börn gegn foreldrum.“ En nú greiddi hann samt atkvæði með sjálfstæðisyfirlýsingunni. Og rödd hans titraði af niðurbældri angist. John Adams hafði tekizt að sann- færa hann. Og Delaware, hvað um fulltrúa Delaware? Thomas McKean beið úti fyrir. Hann hafði staðið þar mest- allan daginn, lagt við hlustirnar og rýnt út í fjarskann í von um að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.