Úrval - 01.10.1970, Side 25

Úrval - 01.10.1970, Side 25
GJAFIR GREGORY MENN 23 glötuð að eilífu.“ Nell sagði oft við syni sína: „Ég er svo glöð yfir því, að þið skylduð koma til okkar og búa hjá okkur.“ Hún hafði mikla gleði af báðum piltunum. Greg var mjög brosmildur. Hann var mikill lestrarhestur, lék á fiðlu og gítar, var mesti siglingagarpur og bjó sjálfur til smásjármyndaplötur af vatnaþörungum. Foreldrarnir og piltarnir ræddu oft saman um alvarlega hluti. Þau höfðu átt eitt slíkt samtal í júní síðastliðnum, eftir að þau höfðu hlustað á prestinn sinn tala um dauðann í stólræðu sinni. „Þetta mun koma fyrir mig . . . fyrir þig . . . fyrir sérhvert okkar,“ hafði hann sagt. „Við ættum einmitt að ræða um slíkt.“ Og það hafði Mennfjölskyldan gert. Drengirnir voru sammála um, að dýrar jarðarfarir þjónuðu eng- um jákvæðum tilgangi. Þeir kom- ust einnig að þeirri niðurstöðu, að það væri hagnýtt og mannúðlegt, að fólk gæfi fyrirmæli um, að nota mætti heilbrigð líffæri þess eftir dauðann til þess að hjálpa hinum lifandi. HEIMUR í RÚST Þeim varð ekki hugsað til dauð- ans á ítalíu 6 mánuðum síðar. Þau skoðuðu sig ■ um í Napoli á nýárs- dag. Næsta dag fóru þau í einnar stundar ferð til Pompeii. Þar veitti leiðsögumaðurinn þeirra, hinn 35 ára gamli Franco Di Rosa, þeim ýt- arlegar upplýsingar um hinar dýr- mætu fornleifar, sem umkringdu þau nú. Síðan fór hópurinn að reika um hið forna torg þessarar rústa- borgar. Þegar þau gengu fram hjá litlu veitingahúsi, sneri Greg sér skyndilega að móður sinni og sagði: „Mamma, ég hef aldrei fengið eins hræðilegan höfuðverk og ég hef núna.“ „Hve lengi hefurðu haft hann?“ „f um 15 mínútur. Mér finnst ég vera sárlasinn." John hjálpaði syni sínum inn á salerni veitingahússins. Þar . kast- aði Greg upp og stundi síðan: Pabbi, . . . nei . . . ó. ... “ Svo hneig hann út af í fangi föður síns. Eigandi veitingahússins ók fjöl- skyldunni til sjúkrahússins í Pom- peii. Greg var meðvitundarlaus. Tveir læknar þar álitu sjúkdóm hans vera bráða matareitrun. John létti við þessar upplýsingar, þangað til Greg fór að fá krampa. Hann ranghvolfdi augunum stjórnlaust, og varir hans urðu bláleitar. Hann varð náfölur. og það komu fram rauðir blettir á hörundi hans. „Það getur verið um heilaskemmdir að ræða,“ sagði annar læknirinn. „Við verðum að koma honum á sjúkra- hús í Napoli." Á slysadeild Polyclinic-sjúkra- hússins þar í borg skoðaði læknir Greg í miklum flýti. Síðan hóf hann útvortishjartanudd. Öndunar- vél var ekið inn í stofuna til þess að hjálpa piltinum með öndun. Nú var klukkan orðin 4 síðdegis. Það var föstudagur. Foreldrar og bróðir Gregs voru sem lömuð. Heimur þeirra hafði nú hrunið í rúst. Greg var augsýnilega stórhættulega veikur. Franco, leið- sögumaður þeirra, hafði fylgt þeim á sjúkrahúsið. Hann gerðist nú
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.