Úrval - 01.10.1970, Side 26
24
túlkur fyrir þau og þýddi spurn-
ingar Johns fyrir læknana. Eftir
nokkurra mínútna viðræður á þann
hátt sagði John: „Þeir segja, að
Gregory hafi raunverulega verið
dáinn, en nú sé hann lifandi að
nýju.“ Enginn virtist raunverulega
vita, hvað til bragðs skyldi taka.
John hringdi til bandarísku ræð-
ismannsskrifstofunnar í örvæntingu
sinni, því að hann vonaði að kom-
ast þannig í samband við banda-
rískan lækni og losna þannig við að
þurfa að ræða við lækna með að-
stoð túlks. Hann vildi geta rætt
siálfur við lækni. Samkvæmt uppá-
stungu eins starfsmanns sjúkrahúss-
ins hringdi hann í Alþjóðlega
sjúkrahúsið og ræddi við dr. Nor-
berto Ferraino.
„Það vill svo til, að hinn mikli
taugaskurðlæknir Francesco Cast-
ellano, er staddur hérna núna,“
saeði læknirinn við hann. „Vilduð
þér. að hann skoðaði son yðar?“
„Já, já, þakka yður fyrir. Já!“
SVIPLAUST AUGNARÁÐ
Klukkan II um kvöldið kom dr.
Castellann til sjúkrahússins og
eerði nrófanir á Greg. Svo sneri
hann sér að John og sagði rólegri
röddu: „Mér þykir það leitt, en það
er ekkert hægt að gera í þessu.
Sonur yðar hefur fengið geysimikla
heilablæðingu."
„Hversu langan tíma á hann eft-
ir ólifaðan?"
..Kannske nokkrar mínútur . . .
kannske nokkrar klukkustundir.“
T.aaVnirínn staðfesti bað. sem John
vissi þegar með siálfum sér: Augu
Cregs höfSu saat honum sannleik-
ÚRVAL
ann. Það var eins og að líta í algert
tóm að líta í augu honum. Hversu
sárt það er að líta þetta tóm! Mað-
ur verður hluti aj þessu tómi. Mað-
ur deyr líka. Öll tilfinning er horf-
in. Eftir verður alger tómleika-
kennd. Hann var svo hamingjusam-
ur í morgun.... svo lifandi....
og svo þetta núna.
Hvernig átti hann að skýra Nell
frá þessu? Nú var komið miðnætti,
og hann vissi, að hún var alveg ör-
magna. En það varð að skýra henni
frá þessu.
Jonathan kom í símann, og faðir
hans sagði: „Greg er mikið veikur.
Hann kemur ekki heim með okkur."
Svo sagði hann við Nell: „Tauga-
skurðlæknirinn sá ekki neina von.
Nú er um mínútur eða klukku-
stundir að ræða.“
„Við komum strax,“ sagði hún
grátandi.
Hjónin féllust í faðma í sjúkra-
stofunni. Nell gat ekki samþykkt,
að það væri rétt, að Greg mundi
deyja. Hún varð að vonast eftir
kraftaverki. Kannske varðveitir guð
börnin, hugsaði hún.
Foreldrar og bróðir Gregs skipt-
ust á um að vaka yfir Greg. Þau
hvíldust á litlum bedda við hlið
rúmsins. Klukkan 2 prófaði John,
hvort hann fyndi nokkurt lífsmark
með Greg. Hann strauk vinstri
handlegg hans með nögl. Vöðvarnir
hreyfðust! Hann strauk einnig aðra
ilina. Tærnar hreyfðust! Hann hljóp
fram á gang, fann lækni, og sýndi
honum viðbrögð Gregs. Þaff er eitt-
hvaff aff gerast! sagði John.
Prófanir læknisins framkölluðu
einnig vöðvaviðbrögð. „Stundum