Úrval - 01.10.1970, Side 94

Úrval - 01.10.1970, Side 94
92 ÚRVAL Yury Krotkov var sannkölluð „stjarna“ innan KGB, þegar veiða þurfti fórnardýr í gildru. Allt frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar hafði hann reynt að lokka fjölmarga embættismenn og blaðamenn í ým- iss konar gildrur, þar á meðal utan- ríkisþjónustumenn frá Bandaríkj- unum, Ástralíu, Englandi, Kanada, Frakklandi, Indlandi, Mexíkó, P.a- kistan og Júgóslavíu. Krotkov var leikritaskáld og höf- undur kvikmyndahandrita. En allt frá bernsku hafði líf hans verið ná- tengt KGB, svo að segja má, að hann hafi verið eins konar afkvæmi þess- arar stofnunar. Hann ólst upp í borginni Tbilisi suður í Georgíu. Faðir hans var listmálari og móðir hans leikkona. Árið 1936 málaði faðir hans mynd af Lavrenti Beria, sem var þá yfirmaður kommúnista- flokks Georgíu. Beria hélt svo mikið upp á þetta málverk, að hann lét hengia eftirmyndir af því víðs veg- ar í Sovétríkjunum, eftir að Stalín hækkaði hann í tign og gerði hann að æðsta yfirmanni KGB. Og Beria hélt áfram að vera verndari lista- mannsins alit til dauðadags hans. Krotkov hélt til Moskvu til þess ?ð leggia stund á bókmenntir. Þar leitaði hann auðvitað uppi gamla KGB-vini fjölskyldunnar og vílaði alls ekki fyrir sér að bið;a þá um hjálp. Hann var fluttur burt frá Moskvu ásamt skólafélögum sínum, þegar Þjóðverjarnir sóttu fast að borginni árið 1941 og líkur voru jafnvel á því um tíma, að þeir tækju hana. Átján mánuðum síðar sneri hann aftur til borgarinnar og komst þá að raun um, að fjölskylda ein hafði lagt undir sig herbergi það, sem hann hafði haft. Hann bað KGB um aðstoð í þessu máli, og fjölskyld- an var tafarlaust rekin úr herberg- inu. KGB hjálpaði honum einnig til þess að fá vinnu hjá Tass-fréttastof- unni og síðar hjá Moskvuútvarps- stöðinni. KGB-menn „höfðu samband við“ Krotkov árið 1946, þegar starf hans fór að veita honum eðlilegar að- stæður og ástæður til þess að hitta útlendinga og umgangast þá. Þá var hann 28 ára að aldri. Hann var taf- arlaust reiðubúinn að ganga í þá deild „samvinnunjósnara“, sem er að finna á öllum þrepum hins so- vézka þjóðfélags. Hann fékk leyfi til þess að halda einnig áfram bók- menntastörfum sínum. KGB-menn vildu reyndar, að hann næði sem lengst á því sviði, því að hann yrði þeim mun nytsamari því lengra sem hann næði. En upp frá því gat hann aldrei losnað undan taki KGB. Sem rithöfundur, menntamaður og vinur Boris Pasternaks og fjöl- skyldu hans var Krotkov tekið opn- um örmum meðal útlendinga í Moskvu. Hann var hár og grann- vaxinn, hafði þykkt og mikið, dökk- brúnt hár og mjög lifandi andlits- drætti. Hann gat talað lipurlega á ensku jafnt og rússnesku um listir, sögu og frægt fólk í Sovétríkjunum. Brátt lærðist honum að notfæra sér ákafa löngun vestrænna gesta til þess að ná einhverium tengslum við rússnesku þióðina. Krotkov fékk hvað eftir annað fyrirmæli um að hafa augun opin og leita að laglegum stúlkum, sem KGB gæti notað til þess að lokka útlend-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.