Úrval - 01.10.1970, Page 63
LÆMINGINN ER FURÐUSKEPNÁ
61
komast að nokkru, sem komið gæti
aðstæðum mannkynsins að gagni.
En samt er líklegt, að árásaræði
Lemmus lemmus muni koma mörg-
um kunnuglega fyrir sjónir, er
skepna þessi berst óð fyrir lífi sínu,
að minnsta kosti öllum þeim, sem
hafa til dæmis reynt að troða sér
inn í strætisvagn á mestu annatím-
um dagsins.
Bandaríski póstmálastjórinn Winton M. Blount hefur þetta að segja
um sína stofnun, sem rekin er með vaxandi tapi, sem nú er komið upp
í billjón dollara á ári: „Það er hugsanlegt, að við seljum ihana. Þetta
yrði alveg stórkostleg gjö.f -handa einbverjum, sem á þegar allt mögulegt."
Skólastrákur, sem situr við kennsluvél, segir við næsta „nágranna"
sinn. „Heyrðu, ég verð að fara á klóið. Á hvaða takka á ég að ýta?
Vátryggingafélögin hafa nú komið þeim karlmönnum til hjálpar, sem
dá kvenfætur og álíta maxikápuna vera sannkallaðan harmleik. For-
stöðumenn og sölumenn vátryggingafélaganna hvetja nú konur til Þess
að aka ekki bílum, klæddar maxikápum (og þá sérstaklega ekki sport-
bílum), vegna þess að kápan geti flægzt í gírstöngum eða fyrir fótum,
sem eru í leit að fótstigum. En miniipilsin fá mjög háa einkunn fyrir
akstursöryggi.
Bob Talbert.
Samtökum þeim í Venezuela, sem starfa að Því að fá landsbúa til
þess að rumska við sér og leggja sjálfir hönd á plóginn til þess að rífa
sig upp úr eymd og drunga, má þakka það, að þorp eitt þar í landi ber
heitið „Sí, Tu Puedes", sem þýðir „Já, þú getur það“.
Samtök þessi fengu verksmiðju eina til þess að gefa steinsteypu, og
svo fengu þau þorpsbúa til þess að leggja sjálfir veg, sem tengdi að lokum
þorpið við umheiminn. Fyrsti ivörubíliinn, sem um veginn ók, kom með
kennslubækur í litla þorpskólann.
Þorpið hét áður „Salsipuedes" eða „Komdu þér burt, ef þú getur það“.
Don MacLean.
Nú geta brezk ungmenni prófað, hvernig þeim lízt á brezka herinn,
áður en þau ganga i hann. Það er engin herskylda í Bretlandi lengur, og
því nota hery.firvöld þar nú ifortölur til þess að útvega sér næga nýliða.
I slikri „reynslustöð" nálægt Bath geta menn dvalið 5 daga og kynnt sér
lifið og skyldustörfin í hernum og hvort slikt líf henti þeim eða ekki. Nú
ef einhverjum líkar það ekki, heldur hann bara áfram að vera óbreyttur
borgari og fer þaðan burt með 9 dollara og 60 centa laun i vasanum
fyrir þessa 5 reynsiudaga.
AP.