Úrval - 01.10.1970, Side 93
KGB — SVOLUHREIÐRIÐ
91
í hvívetna eftir leynilegum fyrir-
mælum frá Moskvu. Sé hann valda-
mikill í ríkisstjórn lands síns, geta
áhrif hans komið meiru til leiðar í
þessu efni en heil herdeild venju-
legra njósnara. KGB-menn og
Khrushchev bjuggust við því, að
Dejean mundi einhvern tíma snúa
heim til Parísar og gerast þar einn
af meiri háttar stjórnmálamönnum
landsins, þar sem mætti nota hann
til þess að sveigja franska utanrík-
isstefnu í þá átt, er væri Sovétríkj-
unum hagkvæmust.
„A okkur hvílir nú geysileg
ábyrgð,“ sagði Kunavin við Krotkov,
,,og það verður mikið undir þér
komið, hvernig til tekst. En sem
stendur ætlast ég nú ekki til annars
af þér en þess, að þú gangir frá öll-
um þínum einkamálum og hafir allt
í röð og reglu, því að þú verður
fyrst og fremst að halda þig við
þetta nýia viðfangsefni og mátt ekki
lát.a neitt annað trufla þig.“
AFKVÆMI KGB
2. aðaldeild, sem er hinn skugga-
legi kjarni KGB, er sem mest leynd
hvílir yfir, var fengið það verkefni
að tæla sendiherrann til þess að ger-
ast handbendi KGB. Þessi deild sér
um helzta verkefni KGB, þ.e. að
bæla allt það niður meðal sovézku
þjóðarinnar, er þjónar ekki alger-
legum hagsmunum hins kommún-
iska einræðis. 2. aðaldeild er beinn
arftaki þeirrar skrifstofu, sem
stjórnaði morðunum og hreinsunun-
um á Stalínstímanum. Núna ti\gg\jf
hún tangarhald kommúnistaflokks-
ins á vísindum, menntun og fræðslu,
listum, dómstólum og réttarkerfi,
kirkju og blaða- og bókaútgáfu.
Hún sér um framkvæmd þess kerfis,
sem ríkið notar til þess að ráða því,
hvar hver sovézkur borgari megi
búa og vinna. Og hún heldur uppi
því neti njósnara og uppljóstrara,
sem er að finna í hverri stofnun, á
hverjum búgarði og í hverri verk-
smiðju, í bókstaflegum skilningi í
hverri götu, í hverri borg og hverj-
um bæ.
2. aðaldeild fæst að vísu fyrst og
fremst við áframhaldandi kúgun
þjóðarinnar, en hún leitast einnig
við að riá tangarhaldi á útlending-
um, sem hætta sér til Sovétríkjanna.
Yfirleitt reynir hún að lokka gesti
til einhvers ólöglegs verknaðar,
helzt kynævintýra eða svartamark-
aðsbrasks. KGB er ekki fjötrað af
neinum lagalegum hindrunum, þeg-
ar reynt er að veiða útlending í
gildru. Stofnunin getur tafarlaust
tryggt sér þjónustu og hjálparmenn
á hverju sviði sovézks þjóðfélags og
meðal sérhvers hóps þjóðfélagsborg-
aranna. Hún getur skipað ríkisstofn-
unum að framkvæma hvað sem er,
„setja á svið“ allt mögulegt, sjá um
kynningar eða lána starfsfólk að
vild til hvers starfs á vegum KGB.
Hún getur lagt hald á íbúðir, hótel-
herbergi, kojur í svefnvögnum járn-
brautarlesta, veitingahús, hvað eina,
sem hún þarfnast þá stundina. Svo
alger og almennur er ótti borgar-
anna við KGB, að stofnunin getur
krafizt þjónustu næstum sérhvers
sovézks borgara, hvort sem um
verkamann eða menntamann er að
ræða, til framkvæmdar áætlana
sinna.