Úrval - 01.10.1970, Side 29
GJAFIR GREGORY MENN
27
íbúa Rómaborgar, alla íbúa Napoli,
alla þjóðina . . . djúpt.“
Gistihússtjórinn kom upp í her-
bergi Mennhjónanna og sagði við
þau: „Við erum vanþróuð þjóð,
hvað snertir slíkt, sem þið gerðuð
viðvíkjandi líkama sonar ykkar.
Þetta, sem þið gerðuð, var dásam-
legt. Þið hafið orðið okkur gott
fordæmi. Ég hef þegar gefið skrif-
leg fyrirmæli um, að ég vilji, að
líkami minn verði notaður á sama
hátt.“
Næsta dag heimsótti Mennfjöl-
skyldan sjúkrahúsið, þar sem
nýrnaflutningurinn fór fram. Dr.
Raffáello Cortesini, skurðlæknirinn,
sem stjórnaði nýrnaflutningunum,
þrýsti hönd Johns innilega og sagði:
„Þetta, sem þið gerðuð, táknar bylt-
ingu hér á Ítalíu. Þjóðin er nú ein-
mitt reiðubúin til þess að styðja
slíkt. Þér hafið gert mikið fyrir
land okkar, og þið gerðuð það ein-
mitt á þeim tíma, þegar mikil þörf
var fyrir það.“ *
Viðbrögðin á Ítalíu við gjöfum
* (Einum mánuði síðar samþykkti
ítalska stjórnin lög, sem leyfðu bæði
hjarta- og lungnaflutninga).
Gregs og síðari viðbrögð við hinu
sama í Wisconsinfylki, þar sem 25
af vinum og kunningjum fjölskyld-
unnar hafa þegar gefið fyrirmæli
um, að líffæri þeirra skuli notast
að þeim látnum, hafa að vísu ekki
dregið úr sorg Mennfjölskyldunnar.
En atburðir þessir hafa gefið missi
þeirra visst gildi. „Sonur minn, vin-
ulr minn og gleði mín afrekaðl
mikið í lífinu, og hann afrekaði
einnig mikið í dauðanum," segir
John Menn. „Á vissan hátt glataði
hann ekki lífi sínu. Hann deildi því
með öðrum. Og hann sýndi öðrum
fram á, hvernig þeir skyldu deila
sínu lífi með öðrum.“
í flestum fylkjum Bandaríkjanna
er mjög auðvelt að gefa allan lík-
ama sinn eða hluta af honum til
notkunar eftir dauðann í læknis-
fræðilegum tilgangi. Gjafinn ber á
sér svokallað „samræmt gjafakort".
Það verndar óskir hans og vilja í
þessu efni og er nægileg lögleg
heimild til slíkrar notkunar, þegar
dauða gjafa hefur borið að hönd-
um. Bandaríkjamenn þurfa aðeins
að skrifa til lífbankans í Houston í
Texasfylki og biðja um, að þeim
verði sent slíkt kort eða frekari
upplýsingar þar að látandi.
zÆSIáz
Hjúkrunarkonan, sem er að sýna föður nýfætt barn, segir við hann:
„Auðvitað tekur barnið yðar fram öllum öðrurn börnum! Hvers vegna
ætti það að vera undantekning?"
Táningastelpan segir við aígreiðslustúlkuna, þegar hún velur sér ilm-
vatn: „Æ, ég er orðin svo þreytt á eilífum vinum og félögum!"