Úrval - 01.10.1970, Qupperneq 68
66
ÚRVAL
og reiði. Það má framkalla kvíða
með því að setja mús og kött í tvö
aðliggjandi búr. Afleiðingarnar
verða þær sömu fyrir köttinn og
rottuna, er haldin var hinni magn-
lausu reiði. Hún deyr einnig.
Það væri auðvitað gagnlaust að
segja einhverjum, sem býr stöðugt
yfir magnvana gremju eða reiði og
vonleysi, hvort sem það er vegna
sérstaklega erfiðs starfs, slæmra
heimilisástæðna eða þess, að hon-
um hefur ekki tekizt að komast
áfram í lífinu, að hann skuli bara
kveða niður allar áhyggjur og
varpa öllum kvíða fyrir borð. Og
það væri sömuleiðis gagnslaust að
segja þeim, sem hatar, að hann
skuli bara hætta að hata. En stund-
um hjálpar það samt að reyna að
bægja burt þessum sjúklegu hugs-
unum með lestri, göngum, handa-
vinnu, ferð í kvikmyndahús, næst-
um hverju sem er. Og ég held, að
það geti hjálpað enn meira, ef það
tekst að sannfæra viðkomandi per-
sónu um, að viðhorf þetta og fram-
ferði geti leitt til sjálfseyðilegging-
ar. Það er sem sé ekki hinn hataði
aðili eða forstjórinn, sem veldur
hinni magnvana reiði, er fær maga-
sár, of háan blóðþrýsting og hjarta-
sjúkdóma. Það er sá, sem hatar,
eða sá, sem lætur gremju og magn-
vana reiði ná tökum á sér. Því er
boðorðið „elska skaltu náunga
þinn“ eitt hið viturlegasta læknis-
ráð, sem nokkru sinni hefur verið
gefið.
Spurning: Hvernig er hægt að
vinna gegn þreytustreitu?
Svar: Mjög fá þeirra starfa, sem
við leysum af hendi, hafa í för með
sér raunverulega þreytu, sem stafar
að miklu leyti af samsafni efna-
skiptaúrgangsefna í ofþreyttum
vöðvum. En tilbreytingarleysi
starfsins getur framkallað svipuð
streitueinkenni. Það er ekki orku-
eyðsla húsmóðurinnar við heimilis-
störfin, sem þreytir hana og fram-
kallar óljósa verki og stingi. Það er
hin sífellda endurtekning skyldu-
starfanna og tilbreytingarleysi
þeirra, sem framkalla þessa þreytu
hennar. Góð regla til þess að forð-
ast slíkt: Þú skalt vinna leiðinleg-
ustu störfin fyrst, en þau skemmti-
legustu síðast. Það hjálpar einnig
að hvíla sig öðru hverju á milli, að
fara t. d. í stutta göngu, leysa kross-
gátu eða fá sér lúr í hálftíma. Slík
tilbreyting og hvíld getur gert
kraftaverk.
Hin sama regla gildir um karl-
menn. Þú skalt öðru hverju taka
þér eitthvað fyrir hendur, sem er
ólíkt hinum hversdagslegu við-
fangsefnum. Sá, sem hefur fisk-
veiðar að atvinnu, finnur hvíld við
lestur tímaritsgreinar. Ritstjóri,
sem er alltaf sílesandi alla daga,
getur fundið hvíld við fiskveiðar.
Örstuttar hvíldir öðru hverju á
vinnudeginum draga úr streitu til-
breytingarleysisins, t. d. kaffihlé
eða þá, að horft er út um glugga
stutta stund eða labbað yfir að
krananum til þess að fá sér vatn
að drekka. Slíkt hefur þau áhrif,
að afköstin verða jafnvel meiri en
ella.
Spurning: Hvað er hægt að taka
til bragðs gagnvart tilfinningalegri
streitu?
Svar: Þegar dýr verða fyrir til-