Úrval - 01.10.1970, Side 97

Úrval - 01.10.1970, Side 97
KGB — SVÖLVHREIÐRIÐ 95 þriðja fundi þeirra Kunavins og Krotkovs mætti einnig KGB-foringi einn, Boris Cherashin að nafni. Hann lézt þá vera ungur rússneskur utanríkisþjónustumaður, Karelin að nafni. Nokkrum mánuðum áður hafði þeim Cherkashin og Orlov verið skipað að elta hóp eiginkvenna franskra sendiráðsstarfsmanna til baðstaðar eins við Svartahaf, og skyldu þeir látast vera piparsvein- ar í sumarleyfi. Þeir höguðu ferð sinni eftir fyrirfram gerðri áætlun, þannig að þeir hittu frú Dejean „af tilviljun", að því er virtist. Síðan fór Cherkashin „að hitta“ hana öðru hverju við ýmis tækifæri í Moskvu, svo sem í veizlum og á sýningum. Loks álitu KGB-menn, að hann væri orðinn nægilega kunnugur henni til þess að geta boðið henni í skemmti- för með nokkrmn „vinum“ sínum, þannig að Krotkov gæfist tækifæri til þess að hitta hana. Frú Dejean þá þetta boð eftir að hafa rætt það við mann sinn, og bætti því við, að hún ætlaði að koma með frú Gui- baud og dóttur annars sendiráðs- fulltrúa með sér. Þeir Kunavin og Krotkov skipu- lögðu nú skemmtiferðina á geysi- lega ýtarlegan hátt. Þeir fengu til umráða kraftmikinn herlögreglubát í herbækistöð einni við Khimkiuppi- lónið og feitlaginn hermann, sem stýra skyldi bátnum. Báturinn var hreinsaður og fægður hátt og lágt í miklum flýti. Pöntuð voru sérstök vín, ostar, ávextir og kökur frá KGB-verzlunum og nokkrir úrvals- réttir útbúnir, sem hægt yrði að steikja í hvelli. Krotkov gafst fyrst tækifæri til þess að tala við frú Dejean, þegar hún kom niður á árbryggjuna og Cherkashin kynnti hana fyrir hon- um. Hún hrópaði upp yfir sig: „En hve þetta er fallegur bátrur! Eigið þér hann?“ Krotkov brosti og svar- aði: „Vinur minn er embættismaður í stjórn einna af íþróttasamtökun- um. Ég lánaði honum bílinn minn, þegar hann fór í sumarleyfi, svo að ég átti svolitla hönk upp í bakið á honum... og þetta er hönkin.“ Tónninn í rödd hans gaf til kynna, að hann væri að trúa henni fyrir leyndarmáli. Svo bætti hann við: „Veitist mér sú ánægja að fylgja yður um borð og sýna yður bátinn?“ Hraði bátsins jókst, er út á ána kom (en fylgt var nákvæmlega þeirri leið, sem KGB hafði gefið fyr- irmæli um). Orlov steig í vænginn við frú Guibaud, en Krotkov ræddi við frú Dejean. „Segið mér frá því, hvað yður finnst um Sovétríkin,“ sagði hann. „Okkur finnst indælt að vera hérna,“ svaraði hún. „Allir þeir em- bættismenn, sem við höfum hitt, hafa verið alveg sérstaklega liprir og indælir við okkur.“ „Yður hlýtur að finnast Moskva vera fremur daufleg í samanburði við París,“ sagði Krotkov. ,„Ég elska auðvitað París,“ svar- aði hún. „En Moskva er líka mikil borg. Hér er líka að finna mikil- fengleika.“ Krotkov yggldi sig dálítið. Síðan sagði hann lægri röddu með upp- gerðarhreinskilni: „Ætlið þér raun- verulega að ætlast til þess, að ég trúi því, að yður geðjist vel að öllu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.