Úrval - 01.10.1970, Page 46

Úrval - 01.10.1970, Page 46
44 Þessi snerting var sem rafstraumur. Hann fann nýja orku streyma um sig. Hann fór að bisa við að koma henni út úr bílnum . .. Bíllinn § I ánni lukkan var næstum fjögur síðdegis laugar- daginn 21. febrúar í ár, þegar Mark Smith, 17 ára að aldri, ók Must- angbifreið vinar síns ___ út á brún hlaðins árbakka við Mi- amiána til þess að þvo hann. Þetta var lágur og rennilegur bíll. Risa- vaxin afturrúðan líktist fremur hluta þaksins en rúðu. f hægra framsætinu sat vinkona Marks, Nancy Burns að nafni. Hún var lag- leg og ljóshærð og einnig 17. ára. Hún vildi gjarnan hjálpa Mark, en 45 Mark vildi ekki, að hún óhreinkaði sig. ,,Jæja, ég sit þá bara kyrr í bílnum og horfi á þig,“ sagði Nancy þá. Það var 45 gráðu halli niður að ánni, þar sem Mark hafði stöðvað bílinn. Vinstra framhjólið var nær brúninni, og hvíldi það á þriggja feta breiðum steinsteypuvegg, sem gerður hafði verið á árbakkanum. Það var 6 feta hæð af honum niður í ána. Áin var þarna 15 fet á dýpt. Hin hjólin hvíldu á grasi. Þetta var í Sky Harbor-bátahöfninni, sem John Smith, faðir Marks, átti. EFTIR E. D. FALES Úrdráttur úr Popular Mechanics Það tók Mark hálftíma að þvo bíl- inn. Klukkan hálffimm fór hann að vefja saman vatnsslönguna. Hann tók eftir því, að Nancy hafði ekki opnað neinn glugga. Nokkrum metrum frá bílnum sá hann föður sinn, þar sem hann var að dytta að snekkjunni sinni, er bar nafnið „Pocahontas“. Nancy teygði sig nú að kveikju- lyklinum og ætlaði að snúa honum í öfuga átt við ræsingu, svo að hún gæti hlustað á útvarpið. En þess í stað sneri hún honum í hina áttina og kveikti á ræsimótornum. Mark sá bílinn taka kipp fram á við. Hann var gírskiptur, og hann hafði skilið hann eftir í lággír og þvi var hann nú knúinn áfram af ræsmótornum. Honum tókst að opna vinstri hurðina, og hann reyndi að stíga á hemilsfetilinn. Bíllinn tók að renna fram af brúninni. Faðir Marks, sem stóð á þilfari snekkju sinnar, sá afturhjól bílsins lyftast frá jörðu og síðan allan aft- urhluta bílsins. Bíllinn vó þannig salt í nokkrar sekúndur. Hann var sem lamaður. Hann sá son sinn beri- ast við bílinn. Hann var kominn inn í hann að hálfu leyti og reyndi að ýta á móti. Svo þegar framendi bílsins tók að hallast meira niður á við, ýttist hurðin aftur vegna nún- ings við bryggjustólpa, og um leið ýttist Mark út úr bílnum. Mark kastaðist aftur á bak. Hann réðst aftur á bílinn sem óður væri. Hann henti sér beint á höfuðið ofan á bílþakið og setti þannig stóra dæld í það. Hann kastaði sér þannig yfir bílinn til þess að komast að hurð- inni þeim megin, sem Nancy sat.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.