Goðasteinn - 01.03.1965, Blaðsíða 12
nýja sáimabókin kom Hafði mikið gaman af öliu mein-
leysis gamni og glensi, t. d., er piltarnir voru eitt sinn að fara
í gegnum sjálfa sig utar í baðstofu á vökunni, gekk hann til
þeirra að líta eftir sollinum. Fór hann þá við sperruhald að
stigagati í gegnum sjálfan sig. Fór það ágætlega, þó líkamaþung-
ur væri og bar ljósan vott um forna æfingu. Hann var nær 6S
ára, þegar ég fæddist. Man ég vel eftir þessu, varla yngri en
7-10 ára. Fór tvær ferðir lausríðandi til Eyrarbakka á ullalest-
um síðast 1879 á 85. ári. Man það af því, að 1880 setti hann
upp á við kaupmann að fá 400 krónur í peningum - meira en
fyrr - og fékk þá í gulli einu og svo næstu tvö ár, 1881 og 1882.
Bar vel og létt ellina, og hinu silfurhvíta hári hélt hann nær ó-
skertu með sjóninni til dauðans. Heyrn tapaði hann að nokkru
leyti, svo tala varð skýrt, og fætur biluðu svo, að 2-3 ár fylgcli
hann rekkju. 1 kirkju fór hann síðast 1880 (Guðm. Helgas.).
Varð að styðja hann inn kirkjugólfið, gekk svo óstuddur inn
eftir messu. Brúkaði gleraugu um fimmtugt, en sjónin skýrðist,
svo hann setti þau aldrei upp síðar. Leit yfir blað (Þjóðólf),
nýkomið, daginn fyrir andlátið. Dó af gamalla manna kolbrandi,
byrjaði í fæti (stórutá).
Þau hjón, Guðmundur og Þuríður, bjuggu saman í 30 ár, áttu
13 börn, 4 dóu í æsku, en 9 komust upp: Ingibjörg, Þuríður,
Jón, Guðrún, Sigurður, Skúli, Guðríður, Júlía, Vigfús.
Guðmundur Brynjólfsson byrjaði búskap 1819, en Þuríður Jóns-
dóttir setti hann frá sér 1896 = 77 ár.
Þrisvar var búi Guðmundar skipt:
1. Á Árbæ 1830 hljóp búið í lausafé einungis 768 rd. 86 sk.
2. Á Keldum 1852 hljóp búið í föstu og lausu 10,994 rd. 38 sk.
3. Á Keldum 1883 í föstu og lausu 26,805 kr. 25 a.
Á Keldum 1896 gaf og afhenti Þuríður Jónsdóttir börnum
sínum kr. 8,605,40. Skipti 1899: Kr. 7,408,92.
Guðmundur Brynjólfsson hefur verið af sumum sagður fá-
tækur á Árbæ, og varð loks úr því „bláfátækur". Þetta er ekki
rétt, að sönnu höfðu þau hjón ckki fengið arfahluta. Tíund hans
var fyrst, er séð verður, 1824, 131/2 hundrað. Fór þaðan ætíð
10
Goðasteinn