Goðasteinn - 01.03.1965, Blaðsíða 34
Frá Disneylandi.
er nefnist Matterhorn og minnir rnjög á fjall með sama nafni
í Ölpunum. Þá er að finna í garði þessum venjulegt Indíána-
þorp og strákofaþorp frá bökkum Amazonfljóts. Bæði þessi þorp
cru í eðlilegu umhverfi, og í Amazonþorpinu heyrast fjölbreyti-
leg hljóð villtra dýra og fugla inni í myrkviðnum. Einn furðu-
legasti hluti garðsins nefnist To-morrowland eða Framtíðarland.
Þar er að finna hin ótrúlegustu farartæki, svo sem eldflaugar,
fljúgandi diska, einspora járnbraut hátt yfir jörðu, himnavagna
og kafbáta, svo að eitthvað sé nefnt. Kafbátar þessir runnu á
sporum, neðan sjávar. IJt um glugga gat að líta margvíslega
fiska, skjaldbökur, kratba og önnur kvikindi leika listir sínar
á hafsbotni.
Allt þetta, og fjölmargt annað, var að sjá í Los Angeles,
þessari stóru, háværu og fjölbreytilegu borg við Kyrrahaf. Los
Angeles er ung borg og hefur að mestu vaxið upp á þessari
öld. Ibúarnir eru af afar blönduðum uppruna, og hér má finna
fólk af flestum þjóðernum og litarháttum. En þótt borgin sé
að mestu byggð á þessari öld, þá er upphaf hennar nokkru
32
Goðasteinn