Goðasteinn - 01.03.1965, Blaðsíða 72
Þórður Tömasson:
Sagnaþœttir
I. S'itunir Jímínii frá HíiiijIióI
Valgerður langamma mín var fædd 4. október 1801 í Fljótsdal
í Fljótshlíð, dóttir Bergsteins Sigurðssonar á Árgilsstöðum i
Hvolhreppi og Guðríðar Sigmundsdóttur frá Forsæti í Landeyj-
um. Móðurmóðir hennar var Elín dóttir sr. Högna Sigurðssonar
á Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Valgerður var ekki hjónabands-
barn. Hún ólst upp hjá föðurfólki sínu á Árgilsstöðum. Amma
hennar, Þuríður Bergsteinsdóttir, bjó þar um skeið eftir lát manns
síns. Bergsteinn sonur hennar giftist Þórunni Einarsdóttur frá
Þverá í Fljótshlíð. Valgerður dvaldi með þeim á Árgilsstöðum
á unglingsárum og átti heldur erfiða vist. Var stjúpa hennar
vinnuhörð að hætti sinnar tíðar.
Valgerður var í fjósinu á Árgilsstöðum. Henni var fengið eitt
og annað að vinna í hjáverkum. Einu sinni bað Þórunn hana
að vefa sokkabönd, meðan kýrnar væru að éta, og tók til band-
ið, sem átti að duga í vefinn. Valgerður rakti í vefinn á veggja-
hælum í fjósinu og tók síðan til við að vefa. I lokin varð hún
þess vísari, að hún hafði farið ódrjúglega með efnið, bandið var
of breitt og náði ekki réttri lengd. Ekki þorði hún að segja
frá þessu um kvöldið og hafði af þungar áhyggjur. Sofnaði hún
út frá þeim um kvöldið með tár á brá. Hún átti draumkonu,
sem oft vitjaði hennar, þegar eitthvað bjátaði á. Valgerði þótti
hún kcma til sín um nóttina og segja: „Vertu ekki að vola út
af böndunum, Valka mín. Ég skal kenna þér ráð“. Fannst Val-
gerði hún svo leiða sig út í fjós. Þar tók hún tvo hæla, rak þá
70
Goðastelnn