Goðasteinn - 01.03.1965, Blaðsíða 90
Haráldur Guðnason:
Li'iðréflini ng viðauki
Óskar Einarsson læknir í Reykjavík hefur bent mér á, að
eigi sé alls kostar rétthermt það sem segir um dvalarstaði for-
cldra Erlends Jónssonar í þætti mínum um Odd Erlendsson
hreppstj. í Þúfu (Goðasteinn, i. h. 1964 bls. 27). Ég þakka Ósk-
ari fyrir þessar ábendingar, því skylt er að hafa það sem sann-
ara reynist.
Þar, scm segir frá bænum Helli, er átt við Vetleifsholtshelli í
Holtum; þar bjó Jón Oddsson og Halldóra Halldórsdóttir frá
vordögum 1796 til fardaga 1798, en þá fluttu þau á part úr
heimajörðinni Vetleifsholti og bjuggu þar til 1804 eða 1805, er
þau lluttu að Litla-Klofa. Samkvæmt sóknarmanntali Kálfholts-
sóknar búa þau 1791 í tvíbýli að Sandhólaferju með stálpuð
börn sín. Erlendur, yngsta barn þeirra, er fæddur að Gadd-
stöðum á Rangárvöllum, en ekki Helli, eins og segir í þættin-
um. Síra Gísli Snorrason í Odda skírir hann og öll hin börnin.
Er þá eigi ólíklegt, að þau hjón, Jón og Halldóra, hafi búið
á Gaddstöðum (Garðstöðum) allan þann tíma, sem börn þeirra
fæðast.
Ingveldur Gísladóttir, kona Erlcnds, cr í þætti mínum talin
fædd í Lindarbæ, en samkv. kirkjubókum er hún fædd í Hábæ
í Þykkvabæ. Gísii, faðir hennar, flytur ekki úr Þykkvabæ að
Lindarbæ fyrr en 1791 og er hún því um 15 ára er hún flytur að
Lindarbæ með foreldrum sínum.
I þættinum segir, að Erlendur hafi byrjað búskap í Lindar-
88
Goðasteinn