Goðasteinn - 01.03.1965, Blaðsíða 33
kvikmyndahús, smíðað í kínverskum stíl, þar sem nýjar myndir
eru jafnan frumsýndar, Á gangstéttarhellunum við hús þetta er
að finna nöfn margra frægra leikara, fótspor þeirra og jafnvel
handaför. Hafa þeir ritað þarna nöfn sín og markað spor, með-
en steypan var ekki fullhörðnuð. Á þenna hátt skilja
þeir eftir sig augljós rnerki til augnayndis fyrir milljónir aðdá-
enda, sem ganga um þessar slóðir.
Þá er ekki síður þekkt vaxmyndasafn eitt mikið þarna í ná-
grenninu, er eingöngu sýnir Iræga leikara. Þar birtast þeir í
fullum skrúða, eins og þeir liíu út í hlutverkum sínum í kunn-
um kvikmyndum, gömlum og nýjum. Er þarna yfirleitt mikið
mannval, en þó misjafn sauður í misjöfnu fé, eins og gcngur.
Sumir eru kóngar og keisarar, aðrir birtast sem hetjur, krafta-
jötnar eða betlarar. Einnig gat að líta listamenn, fáklæddar feg-
urðardísir, jafnvel forhcrta glæpamenn og alræmdar afturgöngur.
Látlaus straumur fólks gekk fram ’hjá styttunum, og margir
virtust, eftir viðbrögðum að dæma, hitta fyrir forna kunningja
og vini. Þarna gat og að líta börn í fylgd með foreldrum sín-
um, og ég sá stálpaða drengi stara með óttablandinni lotningu
upp í kalda vaxásjónu hins ferlega draugs Frankensteins. En
náungi sá hefur leikið í mörgum myndum og haft afar mikil
áhrif á ímyndunarafl unglinga hér vestra og víðar.
Margt er það fleira í Los Angeles, sem vert er að sjá. Þar
er Long Beach eða Langisandur ein af útborgunum. Baðströnd-
in þar er mjög fræg og fjölsótt á sumrum. Til Langasands safn-
ast fríðleiksmeyjar hviðanæva úr heiminum. Á vissum árstím-
um eru þær mældar, vegnar og rannsakaðar af sérfræðingum
og haldnar á þeim sýningar. Helztu þokkadísirnar hljóta nýja
kjóla og sitthvað annað í verðlaun. Flestar dreymir þessar ungu
stúlkur um frægð og frama í sterkri birtu myndatökuskálanna
í Hoilywood - og margar eru kallaðar en fáar útvaldar.
í Los Angeles er líka að finna Disneyland. Þar hefur lista-
maðurinn Walt Disney gefið frjóu ímyndunarafli sínu lausan
tauminn og skapað hina furðulegustu veröld. En það reyndist
miklu meira en dagsverk að skcða þann stað. Þarna er meðal
annars kastali í miðaldastíl. Skammt frá honum rís fjallstindur,
3i
Godasteinn