Torfhildur - 01.04.2007, Side 74
Gyða Sigfinnsdóttir
viðfangsefnum textanna. Hún er ófeimin við að sýna sjálfa sig og
beitir líkama sínum óhikað til að nálgast merkingarkjarna tónlistar-
| innar. Bein áhrif lags og texta eru mismunandi en oft er unnið út frá
einu smáatriði textans og það gert að heillri sögu í myndbandinu.
Sem dæmi má nefna erótík í myndbandi „Venus as a boy“ af
plötunni Post, en lagið lýsir ástríðum, erótík og kynlífi og er með
þekktari myndböndum Bjarkar. Textinn er berorður á sinn hátt eins
og sjá má af eftirfarandi textabroti: „ He sets off, the beauty in her, he' s
Venus as a boy“. Sophie Muller, sem leikstýrði myndbandinu, stað-
setti textann í hlýlegu eldhúsi þar sem úir og grúir af vel þroskuðum
ávöxtum sem vísa í frjósemi. Björk er miðdepillinn, ijóð í kinnum,
með draumkennt augnaráð, syngjandi um leið og hún veltir eggi
upp eftir andlitinu og niður að hálfopnum og ijóðum munni sínum.
Venus er auðvitað ástargyðja en í stað þess að hafa Björk í líki
hennar (þó það sé auðvitað einn túlkunarmöguleiki myndbandsins),
þá spilar umhverfið ekki síður stærri þátt í því að mynda erótíska
stemmningu heldur en Björk sem líður um eldhúsið í hálfgerðum
ástarbríma. Þegar hún brýtur eggin tvö og steikir þau á pönnu
breytist myndmálið og verður líkamlegra, gróteskara en áður. Smjör
bráðnar á pönnu og brennur við áður en eggin steikjast og fljótandi
innihaldi þeirra er sýnd sérstök athygli. Myndin leiðir hugann
| ósjálfrátt að samruna líkamsvessa þegar kynlíf er stundað, um
leið og eggjarauðan er ótvírætt frjósemistákn. Björk vildi að
) myndbandið væri unnið í anda einnar eftirlætisskáldssögu sinnar en
það er erótísk, jafnvel klámfengin, og súrrealísk saga að nafni Saga
augans eða L'Histoire De l'æil, eins og hún kallast á frummálinu,
eftir Georges Bataille frá árinu 1928, en þannig vísar óraunverulegt
myndbandið sjálft í ákveðinn óraunveruleika.
Myndbandið við lagið „Possibly Maybe“ af sömu plötu inni-
heldur einnig ávexti sem skírskota til losta. í textanum segir:
„electric shocks? I love them! with you: dozen a day but after a
while I wonder where's that love you promised me? where is it?“
Rafstrauminn sem Björk syngur um má líkja við fullnægingar og
þá lostafullt samband tveggja einstaklinga. Til að undirstrika erótík
textans þá liggur Björk í rúmi sem virðist standa í ljósum logum
því rúmfötin eru svo rauð. Hún er sömuleiðis sýnd þar sem hún
heldur á melónubita og rennir tungubroddinum eftir honum endi-
löngum og upp eftir eigin handlegg. Niðurskorin melónan er bein
79