Torfhildur - 01.04.2007, Síða 103
„Fá mér leppci tvo“
Og skal ég ráða, en eigi þú
Þegar Hallgerður er gift í fyrsta sinn barnung er hún ekki spurð,
og er það vegna þess að föður hennar „var hugur á að gifta hana“
(9:31). Hann vill sem sagt losna við hana og eina ástæðan sem sagan
gefur upp er ofmetnaður hennar. Þegar hún fréttir að faðir hennar
hefur fastnað hana án vilja hennar og vitundar þykist hún vargefin og
segir við föður sinn: „Nú er ég að raun komin um það, er mig hefur
lengið grunað, að þú mundir eigi unna mér svo mikið sem þú sagðir
jafnari, er þér þótti eigi þess vert, að við mig væri um talað þetta mál;
enda þykir mér ráð þetta ekki svo mikils háttar sem þér hétuð mér.“
(10:31) Hún telur sig sem sagt svikna. Hann segist hins vegar gefa
lítið fyrir „ofmetnað“ hennar „og skal ég ráða, en eigi þú ef okkur
skilur á“ (10:31). Hallgerður er góð að svarafyrir sig og er tungumálið
hennar sterkasta hlið. Eins og oftar á hún síðasta orðið í slíkri sennu,
og hún segir írónískt um leið og hún slítur samtalinu og gengur burt:
„Mikill er metnaður yðar frænda [...] og er það eigi undarlegt, að ég
hafi nokkurn.“ (10:31) Þetta er barátta kynjanna, dóttir gegn föður- j
valdi. Metnaður þeirra gengur þó ekki í sömu átt, því að metnaður
föðurins fyrir hönd Hallgerðar er að hennar mati enginn. Eftir þetta
beinist hennar eigin metnaður að því að endurheimta æru sína með
því að brjóta niður það vald sem metur hana svo lítils. Til þess notar
hún líkama sinn og kvenleika og beitir fyrir sig körlum sem stráfalla
í viðureigninni.
ískautniður
Það sem Hallgerður bregst við og gerir uppreisn gegn er valdaleysi
og þöggun, það að vera gerð útlæg úr samfélaginu eða rekin út á
jaðar þess. Eftir að hún hefur verið geíin burt úr föðurgarði á hún
sér engan stað vísan heldur fylgir eiginmönnum sínum úr einu
byggðalaginu í annað.
ij
Þriðji eiginmaður Hallgerðar er Gunnar á Hlíðarenda,
„vaskastur“ (35:91) karlmaður landsins. Einnig hann veiðir
Hallgerður í hár sitt og skartklæddan líkama þar sem hún gengur
í sjónmál hans á alþingi, þar sem hann sjálfur og förunautar hans
101