Torfhildur - 01.04.2007, Page 126
Kári Páll Óskarsson
) of artistic apprehension. Fincl these and you find the
qualities of universal beauty. Aquinas says: Ad pul-
critudinem tria reqidruntur integritas, consonantia,
claritas. I translate it so: Three things are neededfor
beauty, wholeness, harmony, and radiance (A Portait
... bls. 163).
í
Integritas, consonantia, claritas. Sigurður A. Magnússon hefur þýtt
þetta sem heild, samsvörun og Ijómi. Þríþætt listræn aðferð við að
sjá heiminn. í stuttu máli felst integritas í þvi að maður sér einhvern
hlut, hvaða hlut sem er, t.d. glas, og sér hann sem einn hlut ein-
göngu, aðskilinn frá afganginum af hinum sýnilega heimi, mynd sem
kviknar af hlutnum í hugskotinu. Á næsta stigi, consonantia, gerir
maður sér grein fyrir innra samræmi hlutarins, byggingu hans. Með
öðrum orðum: eftir að hafa skilið að hluturinn er einn hlutur, þá
skilur maður nú að hann er hlutur, heild ólíkra þátta. Á lokastiginu,
claritas, gerist nokkuð sem er næstum yfirskilvitlegt. Maður sér
| hlutinn, í þessu tilfelli glasið, sem þann hlut sem hann er og engan
I hlut annan, verund hlutarins, quidditas skólaspekinnar, það hlut-
verk og stað sem Guð ætlaði hlutnum í sköpunarverki sínu.
Þessi uppskrift er heldur eklci orðin tóm, því svona var það sem
Joyce þjálfaði sig í að skoða veröldina. Svona fór hann að því að
tálga út svo óhemju tærar og nákvæmar myndir af heimaborg sinni
og íbúum hennar. Eftir speki Tómasar er ekkert eftir nema speki
realistans Flaubert til að klára útskýringuna, og Stephen fær lánuð
orð Flaubert úr bréfi hins síðarnefnda til Mlle. Leroyer de Chantepie:
„The artist, like the God of creation, remains within or behind or
beyond or above his handiwork, invisible, refined out of existence,
I indifferent, paring his fingernails.“ (A Portrett... bls. 166)
Aulc þeirra höfunda sem áður eru nefndir þá ætti að reynast
gagnlegt að telja upp þá höfunda aðra sem voru helstu áhrifa-
valdar Joyce, með tilliti til þess hversu fyrirferðarmikil textavensl
eru í öllum verkum hans, fyrir utan hversu mikilvægt hugtakið um
hefðarveldið var módernistum almennt. Tómas frá Akvínó mun
hafa verið helsti áhrifavaldur hans, a.m.k. fram að miðju æviskeiði
hans. Einnig var heilagur Ágústínus mikilvægur höfundur á
mótunarárum Joyce sem og reyndar aðrir trúarlegir höfundar á borð