Mímir - 01.05.1980, Side 6

Mímir - 01.05.1980, Side 6
Samkvæmt kenningu módernistanna átti skáldverkið að vera „samastaður hins firrta manns í sundruðum heimi“.5 Og þó að sum skáldin máli veröldina dökkum litum þá koma þau ekki með neinar úrbætur — þau forðast að predika, en „fela hugsanir sínar myndum og líkingum og seilast fremur eftir margræðum setningum en beinskeyttum staðhæfingum", eins og Hannes Sigfússon kemst að orði.8 Ákjósanlegast var þegar ljóðið hafði ver- ið hreinsað af hinu mannlega, að það væri einungis tilbúinn, sjálfstæður myndheimur og gerði ekki einu sinni kröfur um lesendur. Þannig gengur T. S. Eliot svo langt að segja: „Ljóðlistin er rödd skáldsins að ræða við sjálft sig, eða við engan. Hún er innri hug- leiðing, eða rödd úr loftinu, án tillits til mögulegs mælanda eða hlustanda.“7 Ekki veit ég nú hvort ljóða í þessa ver- una hefur gætt svo mjög á Islandi, en í bók sinni Að yrkja á atómöld segir Sveinn Skorri Höskuldsson það stórt einkenni á þeirri skáldakynslóð sem fram kom eftir seinna stríð hve hljóðlát og innhverf hún er og hversu stór hluti ljóða hennar eru lýrískar náttúrumyndir.8 Fræg eru sömuleiðis einkunnarorð Steins Steinars að Tímanum og vatninu þar sem hann segir að kvæðin eigi „ekki að merkja heldur vera“, eða með orðum Archibald Mac- Leish’s: ,,A poem should not mean but be.“ Þó hér að framan sé vitnað í erlend skáld er alls ekki verið að gera því skóna að ein- hver bein hugmyndaleg tengsl hafi verið milli þeirra og íslenskra skálda. Sömuleiðis fer því víðs fjarri að hér á landi hafi verið til einhver ,,bókmenntaskóli“ sem kalla má módernískan, eða að íslensk skáld bafi fylgt einhverjum stefnuskrám. Sannleikurinn er sá að þau íslensk skáld sem helst hafa verið kennd við módernisma eru á margan hátt býsna ólík. Hins vegar fer þó ekki hjá því að þessi skáld hafa ýmis sameiginleg einkenni sem 4 þau deila með erlendum nútímaskáldum. Auk þeirra einkenna sem nefnd eru hér að fram- an má nefna vantrú skálda á manninum og getu hans til að sigrast á aðsteðjandi vanda- málum. Allt er tilgangslaust, vonlaust; eng- in heilög gildi eru til hjálpar, engin hug- myndafræði til bjargar. Tilveran er í einu orði sagt fáránleg og því verður ekki breytt. Angistin er fullkomin, algild, ósigrandi; heimsslitin óumflýjanleg. Reyndar eru þau vafalaust fá (ef nokkur) íslensku verkin sem uppfylla þessi einkenni að öllu leyti, en líldega komast fyrstu ljóða- bækur Hannesar Dymbilvaka og Imbrudagar nokkuð nálægt því. Árið 1960 skrifaði Hannes Sigfússon grein í Tímarit Máls og menningar sem hann nefndi Bókmenntir á blindgötu. Þar lýsir hann þeirri skoðun sinni að í rauninni væru ekki nema tveir valkostir þegar rætt er um framtíð heimsins: annaðhvort næði sósíalisminn yf- irtökunum eða heimurinn yrði á endanum sprengdur í loft upp. Og þó að björtustu vonir manna um framgang sósíalismans hafi enn ekki ræst sé hann þó skárri valkostur en helsprengjan. Hannes segir: Ef t. d. verður um það að ræða, eins og nú horfir, að sósíalisminn vinni smám sam- an sigur yfir menningu, sem þegar hefur glatað hugsjónalegu inntaki sínu, eða hins- vegar að vetnissprengjan verði höfð á odd- inum um alla framtíð til að verjast hinu óhjákvæmilega og að henni verði beitt þegar allt um þrýtur þá munu þeir /vest- rænir rithöfundar, innskot mitt Þ.Ó./ á- reiðanlega velja fyrri kostinn.9 Með öðrum orðum, þá hafnar Hannes efasemdunum og gildiskreppunni. Ennþá er einhver von um sigur lífsins. Það mun einkum hafa verið Kóreustríð- ið sem olli þessum straumhvörfum í huga Hannesar. Um svipað leyti og það geisaði (um 1950) var hann í miðju kafi í Imbrudögum.

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.