Mímir - 01.05.1980, Qupperneq 70
STARFSANNÁLL MÍMIS VETURINN 1978-1979
Eftir aðalfund haustið 1978 þar sem kosið
var til nýrrar stjórnar Mímis, var hún skipuð
eftirtöldum:
Hafsteinn Karlsson
Gísli Skúlason
Eygló Eiðsdóttir
Þórir Óskarsson
Sigurður Hróarsson
Þess ber að geta að samþykkt var á aðal-
fundi þessum að kosnir fulltrúar úr ritnefnd
og skemmtinefnd yrðu 4. og 5. maður í stjórn
Mímis. Var það álit manna að slíkt yki upp-
lýsingastreymi milli stjórnar og þessara
nefnda, — og stuðlaði e. t. v. að meiri virkni
skemmtinefndar í skemmtanahaldi félagsins.
Það mun þó hafa verið fullmikil bjartsýni!
Menn skiptu með sér verkum á 1. fundi
hinnar nýju stjórnar. Eftir mikil átök sam-
þykkti Hafsteinn að láta krýnast til for-
manns, maðurinn með fjármálavitið varð
gjaldkeri, þ. e. Gísli, og samkvæmt hefð und-
anfarinna ára var kvenmaðurinn gerður að
ritara þ. e. Eygló. Fulltrúi úr ritnefnd var
Þórir, en Sigurður úr skemmtinefnd.
Húsnæðisleysi hrjáði hina nýju stjórn til
að byrja með. Stúdentaráð þurfti að nota
herbergið sem Mímir hafði haft í Félags-
stofnun. Úr rættist er leyfi fékkst til að nota
geymsluherbergi á 1. hæð Árnagarðs undir
eignir og skjalasafn félagsins. Ekki leist
mönnum þó á geymsluna til fundarhalda, svo
fundir voru haldnir í kennslustofu á 4. hæð
Árnagarðs í hádeginu, við tilheyrandi gaul
meltingarfæra.
Störf stjórnarinnar voru með svipuðu
sniði og undanfarið, þó rætt væri um að færa
68
starfsemina af vettvangi skemmtanahalds yf-
ir í meiri hagsmunastarfsemi fyrir íslensku-
nema, því enginn hagsmunahópur er starf-
andi innan deildarinnar. Engu varð áorkað
í þeim málefnum, en hér á eftir skal gerð
grein fyrir því helsta sem stjórnin beitti sér
fvrir:
Kraftakvöld var haldið 25. nóvember í
Stúdentakjallaranum þar sem ,,Eðlubræður“
Eiríkur Rögnvaldsson og Óskar Albertsson
kváðust á af raust mikilli, svo að eigi varð
annarra krafta vart þá um kvöldið. Skemmti-
nefnd hafði veg og vanda af skemmtun þess-
ari.
Rannsóknaræfingin fyrri var haldin í Fé-
lagsstofnun 20. desember. Þar hlýddi margt
manna á erindi Jóns Viðars Jónssonar er hét:
Gróskan í íslenskri samtímaleikritun. —
Endurreisn eða auglýsingarmennska? — Virt-
ist ]oað ná til eyrna áheyrenda og upphófust
fjörugar umræður á eftir. Lauk æfingunni
ekki fyrr en á fimmta tíma morguns. Sagn-
fræðinemum var boðið að taka þátt í Rann-
sóknaræfingunni og gengu þeir að því. Var
síðan ,,skipuð nefnd í málið“ með þátttöku
tveggja íslenskunema og eins sagnfræðinema
er vinna skyldu að undirbúningi æfingarinn-
ar, en % hluta gróða skyldu íslenskunemar
fá og Vi hluti skyldi fara til sagnfræðinga.
Islenskuliðar blótuðu Þorra 23. febrúar í
Skíðaskálanum í Hveradölum. Heiðursblóts-
gestur var Guðni Kolbeinsson, er bar mönn-
um andlega næringu, en á borðum var sam-
ræmdur matur forn og vítur fóru fram undir
vasklegri stjórn Eiríks Rögnvaldssonar.
Farið var í vorferðalag 31. mars. Mun