Mímir - 01.05.1980, Side 24

Mímir - 01.05.1980, Side 24
Þessi fossa iðjan aum undan landi drjúgt mig dró, eg hefi róið illan sjó. Eg hraktist frekt í glæpa glaum og gat ei fetað parið, landfallið ber mig heim í varið. 4. Uppgangsveðrin óttasöm eg mun saman bera við ástríðurökin röm sem rastir knappar gera. Nauðum .kvíðir hugarhöm, í hjartað ört sú pílan smó, eg hefi róið illan sjó. Satans skeytin grimmdar gröm geta flýtum farið, landfallið ber mig heim í varið. 5. Liggjandar og lognin kyrr langstundum ei blífa, veltur uppá vonum fyrr veðraföll og drífa, áður en nolckur eftir spyr eyðist samviskunnar fró, eg hefi róið illan sjó, freistinganna heitur hyr hefur mig líka marið, landfallið ber mig heirn í varið. 6. Af óbyggðum stormastríð stundum blæs á móti, syndafalla hindrar hríð til hafnar fleyið20 fljóti, ógnar bylgju áföll tíð yfir mig drifu þeygi sljó, eg hefi róið illan sjó. Þreytist eg að þola um síð þetta hættu snarið, landfallið ber mig heim í varið,21 7. Þokan frek um flæðar lá færir leiðar grillu, syndadimman mæla má mig svo rak í villu, réttu landi föðurs frá flæmdist eg í krappan mó, eg hefi róið illan sjó. Ljóst það hindra leiftrið má ef ljómann glepur skarið, landfallið ber mig heim í varið 8. Hafs að auga hart eg nær í heimskri villu renndi, undirdjúpin öngvum fær eru þar fyrir hendi, andskotinn með krappar klær kremmir22 hvern sem náir þó, eg hefi róið illan sjó. Endalaus þann ánauð slær sem í fer djöfla snarið, landfallið ber mig heim í varið 9. Á höndum liggur harða strit ef heim skal aftur draga, kæmist fyrir villtan vit vogs á kólguaga, mætti verða á myrkri slit, mál er við að rakna þó, eg hefi róið illan sjó. Hafs í volki hætt eg sit en hartnær megnið farið, landfallið ber mig heim í varið 10. Heim á þetta hafnar hléð halda vil eg um síðir, styrki drottinn stjórnartréð, það stöðuga trúna þýðir. Guðs mér engla lið sé léð, leiði fram mitt ölduhró, eg hefi róið illan sjó. I miðju skipi mastur sé, það merkir krosstré svarið, landfallið ber mig heim í varið 11. Láttu mér drottinn landi að liðuga strauma fleyta, alvarlega iðran það eg mun láta heita, tíðum renni táravað, trú rétt ekki bili þó, aftur heim af illum23 sjó.

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.