Mímir - 01.05.1980, Síða 11

Mímir - 01.05.1980, Síða 11
— fölir steingervingar stjörf líkneski (bls. 32) Menn eru þannig eins og ljósfælnir svart- álfar eða nátttröll sem þola eklti dagsbirtuna en steinrenna, því að í dagsbirtunni er ekki lengur hægt að gleyma sér við draumóra og „elligrænar koparstungur". Þá fá allir hlutir sitt rétta form og mönnum verður ljós sá veruleiki sem þeir byggja. — Dagsbirtan fellur eins og ryk á andlit okkar (bls. 33) Og þetta er ekki neitt venjulegt ryk, held- ur hið skelfilega helryk sem engin landamæri þeltkir og enginn er því óhultur fyrir. En þar sem kjarnorkusprengjan er það afl sem tryggir valdhöfunum áframhaldandi yf- irráð sín er þeim enginn akkur í að almenn- ingur geri sér ljósa þá hættu sem steðjar að. Því stunda þeir markvissa yfirbreiðslustarf- semi. Draumaiðnaðurinn — fjarstýrt kerfi í formi „ósýnilegra geisla“ sem smjúga inn á hvers manns heimili — verður það afl sem heldur borgaranum í skefjum, n. k. deyfilyf sem slævir alla sjálfstæða hugsun. Fjölmiðl- arnir byggja okkur þannig nýjan heim — óskaveröld þar sem við erum frjáls eins og fuglinn, e. k. ofurmenni sem ekkert fær stöðvað, en svífum um alla heima og geima, jafnvel þótt við virðumst sitja kyrr á sama stað. Tæringarsjúklingurinn er fjötraður við járnrúmið að því er virðist honum er ekki hugað líf íugls eða antilópu Ósýnilegur geisli skelfur við eyra hans — og hann er í einni svipan: hvítur örn leiftrandi vígahnöttur voldug sveifla inn í blá víðerni — sprengir glerhjálm tíma og rúms og þræðir launstigu guðs um rökkvaðar eilífðir (bls. 33) Þannig fjarlægjumst við jörðina, það líf sem okkur er eiginlegast og varðar mestu. Að dómi Hannesar hafa vísindin (eða öllu heldur valdhafarnir og hugmyndakerfi þeirra) leitt okkur burt úr mannheimum og inn í einhvern ómælisheim þar sem allt er afstætt og óhlutbundið, tími, rúm og efni. Hin jarð- nesku gildi (,,salt jarðar“) eru fyrir bí, þau verða að engu í samanburði við eilífðir ó- mælisins — sem eru þó í rauninni ekkert nema „þögn og þánandi ljós“. Og með þess- um veruleikaflótta fer fram ákveðin afmenn- ing, hið „stranga form“ mannsins leysist upp í skugga af manninum. Við leitum að aðferð til að fæðast inn í fjarstæður okkar sjálfra og fjarstæður alls sem við þekkjum reynum að flýja reynum að deyja inn í rökkvaða vitund annarrar veru sem væri fær um að leysa okkur frá þeim vanda að vera sjálfir (bls. 37) Og einnig listin er hluti yfirbreiðslunnar, að minnsta kosti ef listamaðurinn viðurkenn- ir ríkjandi hugmyndafræði og gengst þannig við firringu einstaklingsins og fráhvarfi hans frá þjóðfélagsveruleikanum. Þannig taka listamenn þátt í því með vísindunum að leysa heildina upp í öreindir sínar — brotabrot af sundurleitustu hlutum, samhengislausum og óskiljanlegum. Sjá myndir þínar eru vitni um skynbragð augans við að leysa upp staðreyndir jafnvel múrveggir eiga sér grósku og líf sem litróf og iðandi ljósfletir bak við luktar brár Tónlistin er ekki framar djúpur farvegur þungs fljóts sem hverfir ástríðum og hjartablóði heldur slitrótt taugaviðbrögð — stærðfræði taktmælanna 9

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.