Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 19

Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 19
MAGNIÚS SNÆDAL: „ÆVISAMLÍKING“ KOLBEINS GRÍMSSONAR Grein þessi er hluti af B.A.-ritgerð höf., ,,Kolbeinn sat hæst á klettasnös", sem fjall- aði um þrjú kvæði Kolbeins Grímssonar og lítillega um skáldskap hans almennt. Ekki vannst mikill tími til breytinga og sjást þess eflaust merki. Ástæðulaust þótti að prenta hér stafréttan texta kvæðisins sem um ræðir, enda handritasamanburður látinn liggja milli hluta. 1. SKÁLDIÐ Um Kolbein Grímsson jöklaraskáld er fátt vitað með vissu. Hann er oftast í sögnum kenndur við Einarslón undir Jökli, skammt frá Dritvík. Einnig Dagverðará (Dagverðar- nes á Skarðsströnd er misskilningur Gísla Konráðssonar), Fróðá, Hraunlönd og Brim- ilsvelli, en tíu hundruð í þeirri jörð á Kol- beinn að hafa þegið af Brynjólfi biskupi að launum fyrir Sveins rímur Múkssonar, segir sagan.1 Aldur Kolbeins er einnig óviss, nema hvað hann lýkur Grettisrímum sínum 1658 á Dag- verðará ,,nærri sextugus aldri“ og er þá fædd- ur um 1600. Sálmur hans um Hólabiskupa er prentaður á Hólum 1678, aftan við Genes- issálma2 og Vikusálmar út af bænabók Haber- mans eru prentaðir á Hólum 1682.3 I hvor- ugu tilvikinu er hann sagður „heitinn“ eða „sálugur” sem oft mun hafa verið gert á þeim tíma þegar prentuð voru verk látinna manna. Petta gæti bent til þess að Kolbeinn hafi lif- að fram yfir 1682 og því orðið all-gamall. Uppruni Kolbeins er ókunnur svo og af- komendur hans.4 Björn Sigfússon setur fram þá tilgátu að Kolbeinn klakkur í Lóni undir Jökli, launsonur Jóns á Svalbarði og því hálfbróðir Magnúsar prúða, sé afi Kolbeins Grímssonar.5 Kolbeinn klakkur var Þingey- ingur og sótti þriðju konu sína þangað norð- ur 1611. Þessa kvonbænasögu flytur Gísli Konráðsson yfir á Kolbein jöklaraskáld — hvort sem þar veldur nafn eða skyldleiki." Kvæði Kolbeins eru ekki til í eiginhandar- riti svo vitað sé. Það eina sem hann hefur skrifað og vitað er um, er nafn sitt í þing- bók Snæfellsnessýslu nokkrum sinnum á ár- unum 1652—’67 og hefur hann verið vott- ur við dóma. Bendir það e. t. v. til þess að hann hafi verið bjargálna bóndi. Jarðardýrleika Einarslóns, þar sem ætla má að Kolbeinn hafi lengst af búið, er ekki getið í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Þá (árið 1707) eru tveir ábúendur á heimajörðinni. Tuttugu búðir eru þar tald- ar upp auk Malarrifs. Af þeim eru þá þrettán byggðar, sumar með grasi, aðrar þurrar.7 Landkostum á Einarslóni er annars svo lýst í Jarðabókinni: Selstöðu á jörðin í landi sínu, og er fyrir hús brúkaður hellir, sem lítt eður ekki er inni verandi þegar votviðri upp á koma. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.