Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 23

Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 23
Þó þetta sé skrifaS fyrir rúmri öld á það sennilega enn frekar við núna. Kveðskapur Kolbeins Grímssonar, eða efni hans, höfðar varla mjög til nútímamanna. Hann á einkum erindi til okkar sem heimild um hluta af andlegu lífi alþýðu á 17. öld. Hvernig hún lét móðan mása og þuldi guðsorð til að lina hörmungar aldarinnar. 3. HANDRIT. Kvæðið hef ég fundið í sextán handritum. Það er eignað Kolbeini í fjórtán þeirra og nafnið Kolbeinn er falið í síðasta erindinu. Handritunum er skipt í fimm flokka og eitt stakt: A. 1) JS. 230. 8vo. Skrifað ca. 1780 af Jóni Egilssyni í Vatnshorni. Þetta handrit er lagt til grundvallar að texta kvæðisins eins og hann er prentaður hér, en þess getið í aths. ef leshættir annarra hand- rita eru valdir. 2) JS. 470, 8vo. B1 3—4) JS. 491 og 479, 8vo. B2 3—7) JS. 490, 499 og 588, 8vo. C. 8) Lbs. 1756, 4to. Skr. af Einari Sigurðs- syni í Flatey. 9) Lbs. 378, fol. Skr. af síra Friðriki Eggerz. 10—11) Lbs. 1128, 4to og JS. 302, 4to. „Þáttur frá Kolbeini skáldi Grímssyni ok Galdra-Brandi“ eftir Gísla Konráðs- son. Gísli hefur fyrirsögnina „Æfisam- líking Kolbeins“ og er því nafni haldið hér. D. 12—13) JS. 256 og 588, 4to. Bæði skrif- uð af Gunnlaugi Jónssyni á Skuggabjörg- um. E. 14) JS. 507, 8vo. Skr. af Jóni Árnasyni „. . . sumt upp úr kerlingum og körl- um á Álptanesi veturinn 1845—46“. 15) Lbs. 192, 8vo. Skr. af Páli stúdent Pálssyni eftir JS. 507, 8vo. F. 16) Lbs. 3929, 8vo. Annar möguleiki er að flokka handritin þannig að leysa upp B-flokkinn, láta JS. 491, 8vo vera stakt, færa saman JS. 479, 8vo og C-flokkinn, B2 og JS. 588, 4to en JS. 256, 4to yrði þá stakt. Samsvörun JS. 479, 8vo við C-flokk er öllu meiri en við JS. 491, 8vo, B2 og JS. 588, 4to fylgjast mjög að eða meira en JS. 256, 4to og JS. 588, 4to. Með þessu móti yrðu flokkarnir fjórir en stöku handrit- in þrjú. 4. ÆVISAMLÍKING (LAGFÆRÐUR TEXTI). Eg hefi róið illan sjó og öfuga strauma barið, landfallið ber mig heim í varið. 1. Setta eg mér að semja óð í samlíkingar greinum, hvörsu að byltir bylgju flóð bárukarfa einum, má vel skilja maður og fljóð mannsins líf það þýðir þó, eg hefi róið illan sjó. Þverstreymt er um þrautaslóð þér á meðan hjarið, landfallið ber mig heim í varið. 2. Litlum báti líkjast má lífið vort í heimi, ókyrrum í10 öldu sjá er á leiðar sveimi, straumköst og storma þrá stopult hrekur borðin mjó, eg hefi róið illan sjó. Ærið marga ólgu blá yfir hefur hann farið, landfallið ber mig heim í varið. 3. Illar girndir öfugan straum eg mun þýða láta, þá leikur hold við liðugan taum langt úr öllum máta. 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.