Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 30

Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 30
því að hafa tækifæri til að efla málbeitingu fólks, ef við höfum undirbúning til þess héðan. Þennan undirbúning mætti gefa í nám- skeiði þar sem t. d. væri kennd framsögn, ritgerðasmíð, leikræn tjáning og kennsluað- ferðir í íslensku og nemendur gætu farið út í skólana og kannað málfar barna. I bókmenntakennslunni finnst okkur að tengslin við skáldin sem fjallað er um mættu vera líflegri. Kennarar eða Mímir gætu staðið fyrir skáldakynningum, leikhúsferðum eða einhverju slíku. MISMUNUR Á NÁMSKEIÐUM Það er grunsamlega mikill munur á náms- mati og yfirferð í námskeiðum og kröfur eru ekki nógu samræmdar. Verkefnavinna og rit- gerðaskil eru einnig mjög mismunandi. Ann- ars ríkir blessunarlega mikið frjálslyndi hjá bókmenntakennurunum varðandi námsmat. Nemendum jafnvel boðið að velja milli rit- gerðar og prófs. TILHÖGUN NÁMSINS Okkur þykir full ástæða til þess að gera námið í íslensku til B.A. prófs viðameira þannig að það yrði 90 einingar, vegna þess að bæði er um bókmennta- og málfræðinám að ræða. Það sem bættist við núverandi skipulag yrði valfrjálst og hægt yrði að fá námskeið úr almennum málvísindum og bók- menntafræði metin. Þær 30 einingar sem nemendur úr öðrum greinum taka sem aukagrein eru mjög fast- bundnar. Þarna mætti gjarnan bjóða uppá frjálsara val fyrir þá sem vilja leggja mesta áherslu á annað tveggja, bókmenntir eða málfræði. Þau sex námskeið sem nú eru skylda skiptast jafnt milli bókmennta og málfræði, svo þetta nám verður í raun hvorki fugl né fiskur. UMBÓTAVILJI NEMENDA Gagnrýni á námið í vetur hefur helst fal- ist í kaffistofunöldri en engin opinber um- ræða hefur fylgt í kjölfarið. Nemendur hafa tækifæri til áhrifa á námið með setu sinni í námsnefnd en þar verður ekkert gert nema hreyfing nemenda búi að baki. Lítill sam- gangur er á milli árganga og eldri nemendur virðast hafa gefið upp alla von um breyting- ar. Nemendur þegja í tímum þó þeim finn- ist eitthvað að; bíta á jaxlinn og bölva í hljóði. Margir eru aðeins tvö ár í náminu. Fyrra árið eru menn að kynnast aðstæðum en á því seinna finnst mönnum elcki taka því að breyta hlutunum. Á næstunni koma nýir kennarar til starfa í deildinni og nemendur verða að veita þeim aðhald í byrjun svo þeir falli ekki í sama gamla farið. Eins er ástæðulaust að gefa upp alla von með gömlu kennarana. Það er líka sök okkar ef kennarar staðna. Þeir verða að finna að nemendum sé elcki sama um námið og hafi áhuga á tilhögun þess. Eitt af því sem staðið hefur umræðum fyrir þrifum í vetur er að stjórn Mímis hefur ekki séð ástæðu til að halda félagsfundi. Aðeins aðalfundur hefur verið haldinn og mun hann víst teljast til afreka fyrri stjórn- ar. Virðist því líkt á komið með félaginu og fornafna þess í Ásgarði að ekkert er eftir nema höfuðið. Að lokum vonum við að þessi grein og umræða um fagrýni í öðrum deildum verði til að ræsa umræður næsta vetur. 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.