Mímir - 01.05.1980, Page 38

Mímir - 01.05.1980, Page 38
Rétt ft. 35 54 - 32 - 30 - 28 - 26 - 24 ' 22 - 20 - 1'8 - 16 - 14 - 12 - 10 - 8 - 6 - 4 - 2 * LÍNURIT (orð) LÍNURIT A2 og B2. Rltt ft. (ofð) aldrinum 3.0—3.5, síðan þeirra sem eru á aldrinum 3.6—3.11 o. s. frv. og er þá meðaltals-punkturinn settur á það tímabil mitt. Sé aðeins um einn einstakling að ræða á hálfsárstímabilinu er að sjálfsögðu ekki um meðaltaí að ræða og er punkturinn þá settur á réttan stað á aldursásnum (börn nr. 21 og 22). Svæðið milli línanna sýnir mis- muninn á réttum ft.-myndum á myndalista A og myndalista B hjá börnunum. Við höfum ekki sett nein línurit upp fyrir fullorðna fólkið, nema hvað á töflu 5 (súlu- ritinu) sést vel hlutfall réttra ft.-mynda hvers orðs milli barnanna og hinna fullorðnu (í %). TÚLKUN LÍNURITANNA OG VANGA- VELTUR VARÐANDI PAU Ef við lítum á línuritin, kemur berlega í ljós, að um mikla fylgni á milli A og B er að ræða. Sést það best á línuriti A^ og Ba. Meðaltal mismunarins á milli A-lista og B- lista er að jafnaði 6 orð. Mestur er mismun- urinn hjá barni 21 (af marktæku börnunum) (aldur: 7.0) eða 14 orða mismunur á milli A og B, sem er óvenju hátt hlutfall. Pess ber að gæta að hér gæti auðveldlega verið um einstaklingsbundið atriði að ræða og að barn 21 sé alls ekki eðlilegur fulltrúi fyrir sinn aldurshóp. Þess gætir reyndar alls stað- ar í athuguninni þar sem svo fáir einstakling- ar taka þátt í henni. Því er hún ekki tölulega marktæk og síst hjá eldri börnunum því mjög fáir einstaklingar eru á aldrinum frá 4.5 ára. Hins vegar eru nokkuð margir einstaklingar á aldrinum 3.0—3.11 og ætti því athugunin að gefa býsna glögga hugmynd um ft.-mynd- un hjá þessum aldurshópi. Ekki er víst að lægðin í ferlinu um 5 ára aldur sé marktæk. Gæti hér verið um ein- staklingsbundið atriði að ræða eins og hér var vikið að. Pess ber þó að gæta að þau börn sem hér um ræðir nota -ar ft.-endingu í óhófi og væri því hægt að setja fram þá tilgátu að börn á þessum aldri gengju í gegnum e. k. alhæfingarskeið og veldu sér eina „uppáhalds- endingu“. Þessari spurningu verðum við því miður að láta ósvarað hér og bíður hún því marktækrar athugunar. Á línuritum Ai og Bj er engin lína dregin. Þar dreifast punktarnir mjög óreglulega og 36

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.