Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 53

Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 53
i kvæðinu talar Ólafur fyrst um harðindi sem gengið hafi yfir landið. Þá var vinnu- fólkið fúst að vinna einungis fyrir mat sínum. Hunda, ketti, hesta, ref, hrafn og örnu skæða tóku menn íyrir góða gef (-gjöf) sitt gráðugt hungur að fæða. Buðust vaskir bændum menn, ef bjarga vildu lífi, með hálfum verð tiJ vinnu senn, vesaldar spentir kífi. Fæðan er orðin léleg þegar menn eru farnir að leggja sér til munns hunda, ketti og refi. En síðar víkur Ólafur að því er batnar í ári. Pá finnst honum heimtufrekja vinnufólks for- kastanleg. Skuli nást hér nokkur hjú til nauðsynlegra gerða, berhöfðaðir bændur nú fyrir bófum standa verða. Á hússtjórninni höfuð mér lízt horfa niður að jörðu, en í veðrið endinn snýst. Örm hjú þetta gjörðu. Og heift Ólafs er mikil. í lokaversunum útmálar hann hefnd þá sem beið þessa heimtu- freka fólks. Hann hugsar til næstu harðinda. Skinn mun þeirra þanið um bein, þunt og svart að líta, hart og sárt er hungurs mein, það hrokann læknar ýta.8 Það hlakkar í prestinum þegar hann sér vinnuhjú sín fyrir sér í þessu aumlega ástandi. Sigurður Nordal segir (m. a. um Ólaf Einarsson): En þeir Austfirðingar, síra Þorlákur Þórarinsson o. fl. deila sífelt á vinnuhjú og kotunga, letingja og húsganga. Nú eru lestirnir heimtufrekja, leti, hégómaskapur og hortugheit. Þetta bendir á stéttabylt- ingu á 17. öld. Höfðingjarnir lækka, en fátæklingarnir réttast úr kútnum, og kunna misjafnlega með frelsið að fara í fyrstu, eins og gengur. Harðindin miklu á síðara hluta 18. aldar hafa svo aftur lækkað rétt vinnuhjúa.9 Það felst í orðum Sigurðar að á fyrri hluta 17. aldar hafi tíðarfar verið gott og því hafi vinnufólk haft ástæður til að gera „stéttabyltingu“. I því sambandi má minna á að 17. öldin heilsaði landsmönnum með fádæma harðindum, 1601—1604 er talið að um 9 þúsund manns hafi dáið úr hor eða sóttum sem harðærunum fylgdu. 1625 var ógurlegt gos í Kötlu, 1627 var Tyrkjaránið sem dró mikinn slóða á eftir sér. 1632— 1634 voru vetur mjög harðir með penings- felli og af því leiddi að fólk féll úr hor.10 Auk alls þessa breiddist galdrafárið um land- ið og varla hafa aðstæður verið hagstæðar vinnufólki til að gera „stéttabyltingu“. Á seinni hluta aldarinnar jókst bilið enn á milli fátækra og ríkra. Efnaminni bændur flosnuðu upp og mikið framboð var af jörð- um sem hinir efnameiri notfærðu sér óspart til fiárfestingar, því það þótti gróðavænlegt að eiga fasteignir þá sem nú. Mun líklegri skýring á vinnuhjúaádeilun- um virðist mér vera vinnufólksskortur. I harðærunum féllu þeir fátækustu fyrst og hefur það komið niður á vinnufólksstétt- inni.11 Séra Ólafur hefur ekki getað sætt sig við lögmálið fræga um framboð og eftir- spurn. Sigurður Nordal segir einnig um Ólaf: . . . hann skilur betur orsakir ástands- ins en nokkur þeirra, sem feta í fótspor hans. Honum er það ljóst, að það er hag- ur atvinnuveganna, sem ræður.12 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.