Mímir - 01.05.1980, Síða 56

Mímir - 01.05.1980, Síða 56
inn verður búið allslaust og heimilisfólkið fer á sveitina. Skáldið vandar um fyrir fólkinu og gefur því heilræði í lokin. Viljir þú heiður hljóta og hverskyns blessan fá, lengi lukku njóta, ljúflegur vertu þá, þjóna þeim með trú, er þig til gefur þú, sjáðu að augu eilífs guðs á þig horfa nú, sem Pétur og Paulus mælir. Piltar, lifi þið sælir.23 Presturinn boðar guðs blessun yfir þeim sem hírast í vinnumennsku og vinna vel og ósínkt fyrir húsbændur sína. Séra Stefán orti mikið meira um vinnu- fólk en þessi fáu sýnishorn bera með sér og allt féll það í þennan sama farveg. Bjarni Gissurarson (1621—1712) var dóttursonur Einars í Eydölum. Hann lærði í Skálholtsskóla og varð prestur í Þingmúla 1747. Pingmúlaprestakall er lítið og heldur rýrt enda varð hann ekki ríkur maður. Bjarni orti nokkuð mikið um vinnufólk en öðruvísi en frændur hans. Að vísu deildi hann almennt á það, t. d. í ,,Oflátungakvæði“. En þegar hann fer að segja frá vinnufólki sínu í ljóðabréfum til dóttur sinnar, Arndís- ar, kveður við annan tón. Þá er hann að lýsa gömlum og góðum vinum. Sama hér mun selför, nú sígur undir þann stíg; Gerða mun við matgjörð, en Manga fornan heimagang. Postulinn við fé fæst, eg fann ei betra smalamann; skorðar Mangi skip gjörð og skoðar roskinn hafþorsk. Egill rekur að húsi hjörð og heldur í beitum góðum; með honum syngja Múlaskörð, þá maðurinn yppir hljóðum. Draga skal ei af dygðum hans, dánumaður til sjós og lands er hann hjá íslands þjóðum.24 Þannig fær hvert hjú um sig dóm og alla góða. Bjarni orti líka góðlátlegar gamanvís- ur um smala sinn Gvönd, en sá hefur e. t. v. verið heldur seinheppinn, t. d. þegar hann eitt sinn var að skera bjúga. Settist Gvöndur saxi að, sjónarvitni er eg um það, axarhöggin hittu stað helst í troginu þunna; lítið særðist lungnablað, langinn mjór og annað hvað; bjúgað, rétt sem karlinn kvað, koma mun seint í munna.25 En þrátt fyrir að Bjarni liggi gott orð til hjúa sinna, yrkir hann almennar ádeilur á vinnufólk. E. t. v. er þar um að ræða áhrif frá Stefáni frænda hans, en þeir voru miklir vinir. Jón M. Samsonarson segir svo í eftir- mála að kvæðabók Bjarna, Sólarsýn: Vinnufólksekla virðist allmikil á Aust- fjörðum um daga Bjarna. Að hans dómi er meginorsök sú, að í góðærum vilji allir giftast og reisa bú, þótt hvorki séu til efni né framtak. Þetta nefnir Bjarni algifting- ar . . . Bjarni telur því, að afleiðing algift- inga sé annars vegar vinnufólksskortur, en hins vegar húsgangur. Orsakir algift- inga rekur hann til girndar og leti. En af vinnufólksskortinum leiðir oflæti og ó- hlýðni hjúa. Þessum vandamálum er nokk- uð lýst í Oflátungakvæði.20 Það er langt kvæði (137 línur) og er að efni til svipað ,,Vinnumannakvæði“ Stefáns. 54

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.