Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 71

Mímir - 01.05.1980, Blaðsíða 71
ferðalagið einkum minnisstætt sökum sí- breytilegrar ferðaáætlunar eftir að lagt var upp. Orsakir þess voru snjóþyngsli á vegum einkum á Reykjanesskaganum, þangað sem ferðinni var heitið, svo kúrsinn var tekinn í austur að Laugarvatni, Stokkseyri og Eyrar- bakka, er urðu til rannsóknar að þessu sinni. Leiðsögumaður var Bjarni Guðnason. Vorrannsóknaræfingin var haldin 21. apríl í Félagsstofnun. Helgi Skúli Kjartans- son fjallaði þar um efnið: Orsakir Vestur- ferða. — Með því var sagnfræðingum gert jafnt undir höfði þar sem bókmenntalegt efni var á fyrri æfingunni. Erindi Helga vakti menn svo til umræðna að fundarstjórinn, Silja Aðalsteinsdóttir varð að loka mælenda- skrá áður en allir höfðu tekið til máls. Síðasta embættisverk stjórnarinnar var að sjá um haustferðalag 1979 um Njáluslóðir, og var það hugsað sem kynning um leið fyrir 1. árs nema. Tókst ferðin ágætlega undir leiðsögn Gunnars Karlssonar sem vakti menn til umhugsunar um Njálu þegar minnismerki um hana bar fyrir augu. Auk ofantaldra afreka, getur stjórnin stært sig af því að hafa látið binda inn Tummu Kukku, — söngbók félagsins — og dreift henni í bókabúðir. Reynt var að halda almenna fundi um lána- málið ásamt Félagi sagnfræðinema, þar sem fulltrúi frá Stúdentaráði mætti á staðinn til að kynna stöðuna í málinu. Voru fundirnir fyrirhugaðir 21. nóvember og 22. febrúar, en lítið varð úr fundarhaldi sökum lélegrar mæt- ingar. Greinilegt er að hagsmunamálin þarf að taka fyrir á annan hátt en boða til al- mennra funda, ef almenn þátttaka á að fást. Stjórn þessi skilaði af sér hinn 30. októ- ber 1979 á aðalfundi félagsins, og læt ég nú þessum starfsannál lokið. Fyrir hönd Mímis. Eygló Eiðsdóttir, ritari. Á AUSTURVELLI (Hundrað ára ártíð Jóns Sigurðssonar) Á Austurvelli upp á steyptum palli stendur stytta af Jóni. Fáir gleyma göfugmenni. Vel skal minnast mikils manns. Sperrir bringu, brjóstið þenur, horfir með ólund Alþingis til. Orðinn grænn, gróinn elli. Fuglar kúka á frakkann hans. Hann var forðum frelsishetja. Þjóðarstoltið þessa lands. Upphaf þess að árum seinna kom hin þráða konungsgjörð. Öld er liðin lítið gengur. Finnst oss skrítið frelsi vort. Ennþá treður erlend þjóð þungum fótum fósturjörð. (Símon Jón)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.