Mímir - 01.04.1986, Síða 14

Mímir - 01.04.1986, Síða 14
(Nokkrar) Niðurstöður Ljóðagerð síðasta áratugar er í raun afar fjöl- breytt og sundurleit bæði hvað varðar form og innihald. Formgerð flestra ljóða þessa tímabils er þó frjáls, hrynjandi jafnan óregluleg og sára lítið um stuðla og höfuðstafi. Þórarinn Eldjárn er eina skáldið í hópnum sem yrkir undir hefð- bundnum bragarháttum. Yrkisefni sín sækja ungskáldin gjarna til nútímans og nánasta umhverfis og þau leitast við að lýsa lífsháttum samtíðarinnar á gagnrýninn hátt í ljóðum sín- um. Viðhorf þeirra til lífsins í þjóðfélagi nú- tímans er heldur neikvætt þótt oft bregði fyrir húmor og kaldhæðni. Skáldin bjóða sjaldan uppá beinar lausnir í ljóðunum — nema þá helst þær sem óhjákvæmilega felast í andstæðu þess sem fjallað er um. Mjög er deilt á lífsgæða- kapphlaup, kapítalisminn beint og óbeint lýst- ur ábyrgur fyrir sljóleika fólksins og firring nú- tímamannsins er gegnumgangandi þema hjá flestum ef ekki öllum skáldunum sem hér er íjallað um. Áhrifa ýmissa hugmyndastrauma 6. og 7. áratugarins gætir víða í ljóðum ungskáldanna en það er einsog þau verði óbeinni í verkum hinna yngstu þeirra sem virðast þreytt orðin á pólitískum frösum. Reyndar er tímabilið ekki með öllu heilsteypt hvað varðar listrænt stefnumið heldur klofið í það sem nrætti kalla nýraunsæi annarsvegar og „tilfinningalegt“ raunsæi hinsvegar. Hið fyrrnefnda hefur raun- veruleikamiðið, lýsinguna, að leiðarljósi en það síðarnefnda skáldskaparmiðið, ummyndun í listrænum tilgangi. I einfölduðu máli má kannski segja að yngstu skáldin, þe. Anton Helgi og Einar Már, séu hallari undir tilfinn- ingalegt raunsæi en hin nýraunsæið — Stein- unn Sigurðar mundi þó líklega lenda einhvers- staðar þarna á milli! Auðvitað getur svona skifting aldrei orðið einhlít og sama skáld getur sýnt á sér báðar — og oft miklu fleiri — hliðar. Það sem einna nýstárlegast má telja í ljóðum ungskáldanna er myndmál og málnotkun; hvorttveggja er nútímalegt og ferskt. Myndir og líkingar eru gjarna sóttar til vorrar neyslu- hrjáðu samtíðar. Stíll skáldanna er oft húmor- ískur og orðaleikir þeirra hnittnir; slíkum stíl- brögðum er ýmist beitt í ádeiluskyni eða til að blása lífi í viðteknar málhefðir — en þó stund- um í þeim misgöfuga tilgangi að vera fyndinn. í heild hafa ungskáldin lagað ljóðið að þörf- um síns tíma og gætt það andblæ hans og tungumáli — en þau hafa líka lært af fyrirrenn- urum sínum. Þannig eru þau í senn mörkuð samtíðar sinnar „æðstu menning og úthrópuðu ómenning“. Heimildir: Eysteinn Þorvaldsson (sá um útg.): Nýgrœöingar í Ijóða- gerð 1970-1981, Rvík 1983. Anton Helgi Jónsson: Dropi úr siðustu skur, Rvik 1979. Birgir Svan Símonarson: Hraðfryst Ijóð, Rvík 1975, Nat- ursöltuð Ijóð, Rvík 1976, Gjalddagar, Rvík 1977, Ljóð úr lífsbaráttunni, Rvik 1980. Einar Már Guðmundsson: Sendisveinninn er einmana, Rvík 1980, Er nokkiir 1 kórónafötum hér inni, Rvík 1980, Róbinson Krúsó snýraftur, Rvík 1981. Pétur Gunnarsson: Splunkunýr dagur, Rvík 1973. Sigurður Pálsson: Ljóð vega salt, Rvík 1975. Steinunn Sigurðardóttir: Þar og þá, Rvík 1971, Verksum- merki, Rvík 1979. Þórarinn Eldjárn: Kvaði, Rvík 1974, Disneyrímur, Rvík 1978, Erindi. Rvík 1979. Einnig stuðst við ljóðahefti í samantekt Njarðar P. Njarð- vík, Store norske leksikon, Osló 1978 — 81 og Hugtök og heiti í bókmenntafræði, Rvík 1983. 14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.