Mímir - 01.04.1986, Qupperneq 60
börn og jafnvægi ríkir reyndar um nokkra hríð
milli Gísla, Þorkels, Vésteins, mágs Gísla, og
Þorgríms, manns Þórdísar. Til að treysta jafn-
vægið enn betur leggur Gísli til að þeir fjór-
menningarnir gangi í fóstbræðralag. En við það
kemur upp á yfirborðið ágreiningur innan
hópsins; Þorgrímur vill ekki bindast Vésteini
blóðböndum og þar með neitar Gísli að bind-
ast Þorgrími. Þegar þessi ágreiningur kemur í
ljós sér Gísli fram á öngþveiti; það verður ekki
spornað við örlögunum. Hann segir: „Nú fór
sem mik grunaði, ok mun þetta fyrir ekki
koma, sem nú er at gört; get ek ok, at auðna
ráði nú um þetta.“"
Skömmu síðar heyrir Þorkell tal konu sinn-
ar, Ásgerðar, og Auðar, konu Gísla, þar sem í
Ijós kemur að Ásgerður er hrifin af Vésteini.
Sæmd Þorkels er ógnað og Vésteinn er drep-
inn; öngþveiti verður. Það er ekki ljóst af sög-
unni hverdrap Véstein, Þorgrímureða Þorkell,
en jafnvægi verður aðeins komið á aftur með
hefnd. Og Gísli lendir í þeirri tragísku aðstöðu
að þurfa að drepa eiginmann systur sinnar til
að hefna fóstbróður síns og mágs. En fullt jafn-
vægi kemst ekki á fyrr en Þorgríms er hefnt.
Þórdís ein veit hver morðingi hans er og nú
Iendir hún í þeirri tragísku aðstöðu að koma
upp um bróður sinn. Hún tekur eiginmanninn
fram yfir ættmenni sitt, Gísla.
Gísli er gerður útlægur og harmsögunni lýk-
ur með falli hans eftir að hafa verið hundeltur
skógarmaður í 13 — 14 ár. Eftirmæli sögunnar
um Gísla eru þessi: „Lýkur þar nú ævi Gísla,
ok er þat alsagt, at hann hefir inn mesti hreysti-
maður verit, þó hann væri eigi í öllum hlutum
gæfumaðr.12 Gísli hefur alla burði til að verja
heiður sinn og ættar sinnar. Hins vegar má
spyrja hvort þjóðfélag þar sem sæmdin er yfir-
skipuð lífinu gengur upp.
„Opt stendr illt af kvennahjali.“
Hin vonlausa barátta Gísla sögu er baráttan
við að halda jafnvægi í samfélaginu og um leið
11 íslensk fornrit VI, bls. 24.
12 íslensk fornrit, bls. 115.
sæmd sinni. Vilhjálmur Árnason fjallar um
siðfræði íslendingasagna í grein sinni „Saga og
siðferði".13 Þar segir hann að í ættarsamfélagi
eins og því sem íslendingasögurnar lýsa hljóti
áreiðanleikinn að vera mikilvægasti mannkost-
urinn og hugrekkið, aðalsmerki hetjunnar, vera
uppistaðan í þessum áreiðanleika. Hetjuskap-
urinn sé í raun þjóðfélagsleg nauðsyn. Því
gangi hetjan ótrauð á vit örlaganna. Hann vitn-
ar síðan í Steblin-Kaminskij þar sem hann tal-
ar um hefndarskylduna:
Kynngimáttur hennar stafaði greinilega ekki af
innrætingu ákveðinna hugtaka í uppeldi („heið-
ur“, „skylda“, o.s.frv.), heldur stafaði hann
beint af þeim félagslegu aðstæðum sem menn
áttu við að búa, og vegna aldagamallar reynslu
varð hún að sjálfkrafa viðbragði.14
Gísli Súrsson er hugrökk hetja sem sér
sóma sinn í að verja orðstír ættar sinnar og
gengur ótrauð á vit örlaganna. En var þetta
sjálfkrafa viðþragð hjá Gísla eins og Steblin-
Kaminskij vill vera láta? Við skulum aðeins
athuga hvernig hetjunni er innrætt sæmdin.
Þegar fréttist, að Bárður fífli Þórdísi, líkar
Þorbirni, föður hennar, það illa. Hann segir að
þetta myndi ekki gefast vel ef Ari væri heima. í
þessum orðum felst eggjun. Þorþjörn gefur í
skyn að Ari myndi verja sóma ættarinnar betur
en þeir bræður Gísli og Þorkell. Þetta verður til
að Gísli sýnir hetjuskap sinn og drepur Bárð.
í S-gerð sögunnar er sagt mun ítarlegar frá
þessu. Þorbjörn eggjar Gísla með þessum orð-
um:
„Eigi hefir þér í hald komit bónríkit þitt. Er
þat bæði, að meyleg hefir orðit tiltekjan þín,
enda ætla ek tvísýni á, með hváru skal heldr
telja bræðr, sonum eða dœtrum. Nú er þat mikit
at vita á gamalaldri, at eiga þá sonu, er eigi
þykkir meiri karlmennska yfir en þar sé konur
aðrar, ok eruð þér ólíkir bræðrum mínum,
Gísla ok Ara.“15
13 Vilhjálmur Árnason, 1985.
14 Steblin-Kaminskij, 1981, bls. 84.
15 íslensk fornrit VI, bls. 24.
60