Mímir - 01.04.1986, Qupperneq 81
1) Hvergi í ritum ÞV hef ég rekist á skilgrein-
ingu á miðstofninum né heldur hefur mér
tekist að setja fram slíka skilgreiningu.
2) ÞV þarf oftar en ekki að endurgera orð-
myndir sem engin dæmi finnast um í heim-
ildum um örnefnin og jafnvel þarf hann að
endurgera fyrri liði sem engin dæmi eru til
um í íslenskri málsögu. Vegna þessa þarf
hann oft að gera ráð fyrir að örnefnin hafi
orðið fyrir hinum ólíklegustu breytingum.
3) Mér hefur ekki tekist að koma auga á neina
reglu í þeim breytingum sem ÞV telur að
hafi gerst í miðstofnsörnefnunum. Innskot
miðstofnsins í heild sinni er því hvorki
hljóðbreyting, orðmyndun né alþýðuskýr-
ing.
Þær breytingar sem vissulega hafa gerst í
sumum þessara örnefna og sjá má dæmi um í
heimildum, má sennilega flokka undir alþýðu-
skýringar, þ.e. að orðliðir sem eru orðnir tor-
kennilegir eru gerðir kunnuglegri, án þess að
þar þurfi nokkur miðstofn að koma við sögu.
Þetta þyrfti auðvitað að athuga betur með sam-
anburði við fleiri örnefni en þau fáu sem hér
hafa verið til athugunar.
Það er rétt að benda á að þótt ýmsar ör-
nefnaskýringar ÞV hafi hér að framan verið
taldar ótrúverðugar þá hefur ekki verið sýnt
fram á að þær séu beinlínis rangar, heldur að
þær hafi ekkert gildi sem rökstuðningur fyrir
mistofninum.
Niðurstöður mínar eru því í stuttu máli þær
að „miðstofninn“ — eins og hann birtist í rit-
um ÞV — eigi meira skylt við auðugt hugarflug
en blákaldan veruleika.
Heimildir
Árni Magnússon og Páll Vídalín. 1913—43. Jaröabók
1 — 11. Hið íslenska fræðafjelag, Kaupmannahöfn.
Ásgeir Blöndal Magnússon. 1981. Um sérhljóðabreytingar
á undan samhljóðaklösum með /-i. Afmœliskveðja til
HaUdórs Halldórssonar 13. júlí 1981. íslenska mál-
fræðifélagið, Reykjavík.
Björn K. Þórólfsson. 1925. Um islenskar orömyndir á 14.
og 15.öld og breytingar þeirra úr fornmálinu. Fjelags-
prentsmiðjan, Reykjavik.
Christensen, Vibeke & John Kousgárd Sorensen. 1972.
Stednavneforskning 1. Afgrænsning. Terminologi.
Metode. Datering. Universitetsforlaget, Kobenhavn.
Cleasby, Richard & Guðbrandur Vigfússon. 1874. An Ice-
iandic-English Dictionary. Oxford.
Eiríkur Rögnvaldsson. 1984. ísiensk málfreeði. Hljóðkerf-
isfræði og beygingarfræði. Reykjavik.
Fritzner, Johan. 1886—1972. Ordbog over Det gamle
norske Sprog. I —IV. Den norske Forlagsforening,
Kristiania / Universitetsforlaget, Oslo.
Grimnir. Rit um nafnfræði. 1 —. 1980—. Ritstjóri Þórhall-
ur Vilmundarson. Örnefnastofnun Þjóðminjasafns,
Reykjavík.
Guðvarður Már Gunnlaugsson. 1985. Nöfn hreppa og
kaupstaða. Tilraun til flokkunar ásamt yfirliti yfir
nöfn á öðrum stjórnarfarseiningum. Óprentuð próf-
ritgerð. Háskóla íslands, Reykjavík.
Guðrún Kvaran, Sigurður Jónsson og Svavar Sigmunds-
son. í prentun. Personnamn i islándska gárdsnamn.
Væntanl. í NORNA-Rapporler 29.
Hreinn Benediktsson. 1962. Islandsk sprák. KLNM
7:486-93.
íslenzk fornrit. I — . 1933 — . Hið íslenzka fornritafélag,
Reykjavík.
Kristján Árnason. 1980. Some processes in Icelandic con-
nected speech. Even Hovdhaugen (ritstj.). The Nor-
dic Languages and Modern Linguistics. Proceedings
of the Fourth International Conference of Nordic
and General Linguistics. Oslo.
Noreen, Adolf. 1970. Altnordische Grammatik I. Altis-
lándische und altnorwegische Grammatik. 5. útgáfa,
óbreytt. Max Niemeyer Verlag, Túbingen.
Svavar Sigmundsson. 1975. Hálfdanarheimtur. Afmœlisrit
Björns Sigfússonar, bls. 245—250. Sögufélag,
Reykjavík.
Sveinbjörn Egilsson. 1966. Lexicon poeticum. Antiquæ
linguæ septentrionalis. Ordbog over det norsk-is-
landske skjaldesprog. 2. útgáfa. Kaupmannahöfn.
de Vries, Jan. 1962. Altnordisches etymologisches Wörter-
buch. 2. útgáfa. E.J. Brill, Leiden.
Þórhallur Vilmundarson. 1969a. Kennd er við Hálfdan
hurðin rauð. Afmœlisrit Jóns Helgasonar 30. júní
1969, bls. 431 —456. Heimskringla, Reykjavík.
—. 1969b. Um sagnfrœði. Reykjavik.
-. 1971 a. -stad. KLNM XV1:578 —584.
—. 1971 b. Úr Lifrardal til Liverpool. Afmalisrit tii Stein-
grímsJ. Þorsteinssonar, bls. 225—244. Reykjavík.
—. 1975. Lúdent. Afmcelisrit Björns Sigfússonar, bls.
288 — 301. Sögufélag, Reykjavík.
—. 1976. Af Sturlum og Stöðlum. Minjar og menntir. Af-
mœlisrit helgað Kristjáni Eldjárn, bls. 533 — 564.
Reykjavík.
—. 1978. Hugarflug og veruleiki í íslenzkum örnefnum.
Namn och Bvgd 66:100—109.
Auk þess glósur, dreifiblöð o.fl. úr námskeiðinu.
81