Mímir - 01.04.1986, Síða 63

Mímir - 01.04.1986, Síða 63
máli, sbr. það sem áður segir um að orðrómur- inn sé verri en sannleiksgildi hans. Eftir öngþveitið sem verður við morðin tvö kemst á jafnvægi, að því er virðist. En kona verður til þess að raska því á ný. Þórdís segir Berki bónda sínum vísuna sem Gísli kvað og kom upp um sig með. Börkur vill strax af stað til að hefna, en svo er eins og hann sjái sig um hönd, því að hann segir: „En þó veit ek eigi“, sagði hann, „hvt satt er í þessu, er Þórdís segir, ok þykki mér hitt eigi ólíkara, at engu gegni, ok eru opt kpld kvenna ráð.“32 í lengri gerðinni er Þorkell látinn mæla þessi orð og fellur það bet- ur inn í samhengið. Með þeim tefur hann för- ina og getur farið að vara Gísla við. En kjarni málsins breytist ekki. Þeir vilja ekki trúa henni og bera henni á brýn að sak- fella Gísla saklausan. En orð Þórdísar voru fallin svo að eitthvað varð að gera í málinu — koma jafnvægi á. Þarna kemur Þórdís aftur fram sem friðarspillir, ógnun. Gísli virðist líka eiga erfitt með að trúa uppljóstrun Þórdísar. Hann ber hana saman við Guðrúnu Gjúka- dóttur sem réð manni sínum bana tii að hefna bræðra sinna. Gísli segist ekki eiga slíkt skilið frá Þórdísi þar sem hann hafi oft lagt líf sitt í hættu hennar vegna. Hann á við að hann hafi oft bjargað hennar kvennasæmd. En Þórdís kærði sig ekkert um það eins og fram hefur komið. Samúð sögunnar er þó augljóslega með Gísla sem sýnir að hetjubókmenntir eru karlabók- menntir og konum er þar lýst sem friðarspill- um. I harmsögunni um Gísla eru konur hreyfi- afl atburða og færa söguna í átt til öngþvcitis. Hlutverk þeirra er að ógna því hárfína jafnvægi sem ríkir í ættarsamfélagi feðraveldisins. Alþýðusagan Harmsagan hefur pýramídabyggingu. At- 32 Sama, bls. 61. 33 Anderson segir að hvörf í íslendingasögunum séu yfirleitt vanvæn fyrir söguhetjuna.(T.M. Anderson, 1967). Enda þótt hvörfin í Gísla sögu verði ekki við fall hans, þá stefni allt niður á við eftir að hann fer á skóggang. Hann er dauðadæmdur. burðir leiða til ákveðins riss, eða hvarfa, sem verða þegar Þórdís kemur upp um Gísla og hann er gerður útlægur. Þá tekur sagan aðra stefnu og endar með falli Gísla. '3 Alþýðusagan er samsett úr strjálum minnum eða sögnum sem verða meira áberandi eftir hvörfin og sagt er frá útlegð Gísla. Óskar Hall- dórsson hefur gert orðunum sögn, arfsögn eða munnmæli nokkur skil. Hann segir að slíkar sagnir geri kröfu um að þeim sé trúað, en nái þær að ganga meðal manna þróast þær í sam- ræmi við lögmál frásagnarlistar. Þannig breyt- ast þær og afbrigði myndast, þó að einhver sannleikskjarni haldist.34 Það er ekkert vafamál að munnmæli hafa gengið um útlagann Gísla. Ekki er heldur ólík- legt að ýmsar arfsagnir eða minni hafi verið tengdar Gísla eins og kemur fram í tilvitnun í grein Idu Gordon í inngangi. Frásögnin af því er Gísli drepur Þorgrím er t.d. nokkuð lík frásögn í Droplaugarsonasögu. Maður nokkur læðist inn í hús að næturlagi, bindur saman kýrhala til að torvelda eftirför og vegur svo annan mann í rúmi. Bent hefur veiið á rittengsl sagnanna í þessu sambandi og held- ur Björn Karel Þórólfsson því fram að höfund- ur Gísla sögu hafi notað Droplaugarsonasögu.35 Hins vegar er það algengt minni í þjóðsögum að binda saman kýrhala af prakkaraskap og þarf þetta sameiginlega minni ekki endilega að sanna rittengsl, heldur einungis benda til þess að þetta minni hafi verið á kreiki í munnmæl- um. Margar þessara alþýðusagna eru fullar kímni. Gísli hermir eftir Ingjaldsfíflinu til að leika á óvini sína og felur sig í rúmi Álfdísar sem sagan segir að hafi verið „inn mesti kvenskratti“36 Aristoteles segir að skopleikur- inn sé eftirlíking fólks af lakara tagi og sé hið spaugilega tegund ljótleika.37 í þessum frásögn- 34 Óskar Halldórsson, 1976. 35 Björn K. Þórólfsson, 1943 36 íslensk fornrit VI, bsl. 86. 37 Aristoteles,1976,bls. 52. 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.