Mímir - 01.04.1986, Blaðsíða 72

Mímir - 01.04.1986, Blaðsíða 72
(5) Báru- *Eyja- *HaH'naðar-/nanar- *Hallar- *Hvinar *Enda- *Kóra- *Randa(r)- Steina- *Vilpu- Þyrils- > Báreksstaðir > Eyjólfsstaðir > Hálfdanarhurð > Hallormsstaður > Hvinverjadalur > Indriðastaðir > Kóreksstaðir > Randversstaðir > Steinarsstaðir > Vilborgarstaðir > Þiðriksvellir Það vekur athygli að í átta tilvikum af ellefu hefur ÞV þurft að endurgera orðmyndir, þ.e. að gera ráð fyrir orðmyndum sem ekki er að finna í heimildum um þessi örnefni. 2) Örnefni sem höfðu fyrri lið sem a) hvarf (alveg eða að mestu leyti) úr málinu sem sjálf- stætt orð, eða b) glataði þeirri merkingu sem hann hafði en lifði sem sjálfstætt orð í annarri merkingu: (6) *Bpggs-(BQggu-) *Gaular- *Hallaðar- *Hplkna- *Huglar- Meiðar- Mýla- *Siga- Silfrar-(*Silfru-) > Böggvis-/ Böggversstaðir > Gaulverjabær > Halldórsstaðir > Helkunduheiði > Hugleiks-/ Hugljótsstaðir > Mei-/Mýríðarstaðir > Mýlaugsstaðir > Sigríðarstaðir > Silfreks-/ Silfrúnarstaðir Um *Háva > Hávar(ð)sstaðir, Kyrna- > Kýr- unnarstaðir, Tundra- > Tyndriðastaðir og Víða- > Viðarsstaðir þori ég ekkert að fullyrða vegna þess að mér er ekki fyllilega ljóst hvað fyrri liðir þessara örnefna merktu (sjá nánar 3. kafla). Ef alþýðuskýring er það að breyta torkenni- legum eða jafnvel óskiljanlegum örnefnum þannig að þau verði auðkennilegri og skiljan- legri, þá er ljóst að hér getur ekki nema að hluta til verið um alþýðuskýringu að ræða. Ef innskot miðstofnsins í öllum örnefnunum í (1) er af sömu rótum runnið, eins og ætla mætti af skrifum ÞV, þá sýnist mér afar ólíklegt að hægt sé að skilgreina miðstofninn með skírskotun til alþýðuskýringa, nema auðvitað að sá skilning- ur sem hér hefur verið lagður í hugtakið al- þýðuskýring sé eitthvað brenglaður eða þá að ÞV leggi einhvern annan skilning í þetta hug- tak. Af eftirfarandi tilvitnun að dæma virðist mér ÞV reyndar leggja svipaðan skilning í hug- takið alþýðuskýring og hér hefur verið gengið út frá: „Breytingin *Sangrfoss>Sœngurfoss [.. .] gæti verið einföld alþýðuskýringarbreyt- ing, eftir að no. *sangr ‘söngl, niður’ var orðið fátítt eða fallið úr notkun og menn hættir að skilja það“ (Grímnir 1:41). 3. Miðstofninn — hugarflugeða veruleiki? 3.1. Ef hvorki er hægt að skýra innskot mið- stofnsins fyllilega sem hljóðbreytingu, orð- myndun né alþýðuskýringu, hvað er hann þá? Sá grunur vaknar að í raun sé alls ekki hlaupið að því að skilgreina miðstofninn enda hef ég hvorki komið auga á slika skilgreiningu né reglu sem skýri innskot hans í ritum ÞV. í framhaldi af þessu mætti jafnvel efast um að tilhneigingin til að auka örnefni miðstofni sé eins rík og ÞV vill vera láta. Hér á eftir verður rökstuðningur ÞV fyrir miðstofninum athugaður betur. Getið verður um helstu rithætti örnefnanna og vitnað í mál- sögulegar röksemdir ÞV (ef þær eru fyrir hendi) annars vegar fyrir endurgerðum orðmyndum (ef um slíkt er að ræða) og hins vegar fyrir þeim breytingum sem örnefnin hafa eða kunna að hafa orðið fyrir. Yfirleitt er sleppt að minnast á örnefni í Skandinavíu eða annars staðar á hinu germanska málsvæði sem ÞV notar máli sínu til stuðnings. Reynt verður að leggja mat á það hvort breytingar þær sem ÞV gerir ráð fyrir að hafi gerst í miðstofnsörnefnunum séu nauðsyn- legar svo og hvort breytingar þær sem vissulega hafa gerst í örnefnunum réttlæta hugtakið mið- stofn. Ef ÞV getur ekki um það hvaðan af landinu örnefnin séu þá verður reynt að staðsetja þau með hliðsjón af Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns (hér eftir JbÁM). 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.