Mímir - 01.04.1986, Side 93
Starfsannáll Mímis
1983-1984
Þeir sem skipuðu stjórn Mímis árið
1983 — 1984 voru Valtýr Valtýsson formaður,
Katrín Tryggvadóttir gjaldkeri og Jóhannes Jó-
hannsson ritari. Meðstjórnendur voru Jóhann-
es Gísli Jónsson fulltrúi ritnefndar og síðar
Arnhildur Arnaldsdóttir og Anna Bragadóttir
fulltrúi skemmtinefndar.
Stjórnin stóð fyrir tveim fræðslufundum á
árinu. Sá fyrri var haldinn 29. nóv. 1983 og þar
var til umræðu „íslenskur framburðurA Frum-
mælendur voru Ævar R. Kvaran og Kristján
Arnason og fundarmenn voru á milli 60 og 70.
Síðari fundurinn var 21. mars 1984. Þar flutti
Flaraldur Bessason ágætan fyrirlestur um Völ-
undarkviðu en um 20 manns hlýddu á.
Einn almennur félagsfundur var haldinn á
árinu og umræðuefnið var tillögur um nýskip-
an íslenskunáms til B.A. prófs. Vilhjálmur í.
Sigurjónsson var frummælandi og reifaði hann
tillögurnar sem fólu í sér töluverða breytingu á
námskeiðum og þá einkum á fyrsta ári. Mjög
voru skoðanir skiptar um þetta mál og var því
að lokum vísað til námsnefndar.
Flaldinn var kynningarfundur fyrir 1. árs
nema þar sem starfsemi Mímis var kynnt einn-
ig voru á fundinum fulltrúar stúdentaráðs sem
gerðu grein fyrir ástandi lánamála 1. árs nema.
Ekki var áhugi nýnema mikill á þessum mál-
um því einungis fimm komu á þennan fund.
Skemmtanahald á vegum Mímis var í hefð-
bundnum stíl. Kraftakvöld var haldið 11. nóv-
ember í Drangey Síðumúla 35. Þar sýndi Skúli
Pálsson töfrabrögð og Málfræðingakvartettinn
söng nokkur lög við góðar undirtektir. Guðni
Olgeirsson sá síðan um að fólk gat iðkað dans-
mennt að vild.
Jólarannsóknaræfingin var 17. des. í FS. Hún
var að þessu sinni í höndum sagnfræðinema en
Mímir aðstoðaði við framkvæmd hennar og
fékk í sinn hlut 'h ágóðans.
Ræðumaður kvöldsins var Davíð Erlingsson
og fjallaði ræða hans um Auðunar þátt vest-
firska. Fjörugar umræður urðu að lokinni ræð-
unni og síðan var stiginn dans fram eftir nóttu.
Þorrablótið var haldið á góunni í Drangey
við dræma aðsókn. Heiðursgestur kvöldsins var
Heimir Pálsson og rifjaði hann upp fornar
minningar frá veru sinni í Mími.
Vorrannsóknarferð var farin 14. apríl undir
fararstjórn Vésteins Ólasonar. Ferðast var um
uppsveitir Árnessýslu og var það mál manna
að ferðin hefði tekist með ágætum. Ekki gat
orðið af því að farið yrði í haustrannsóknarferð
i valdatíð þessarar stjórnar og var ástæðan
verkfall BSRB.
Símaskrá Mímis var samkvæmt venju gefin
út á haustdögum en af öðrum ritum segir held-
ur fátt. Blað íslenskunema Mímir kom ekki út
á árinu og voru til þess ýmsar ástæður sem ekki
verða tíundaðar hér.
Síðasta verk stjórnar Mímis 1983 — 1984 var
að leggja til að lögum Mímis yrði breytt í þá
veru að skemmtinefnd yrði lögð niður en í þess
stað kosinn Ijórði maður í stjórnina. Þessar
breytingar voru samþykktar á aðalfundi Mímis
29. október 1984. Ástæðan fyrir því að
skemmtinefnd var lögð niður var sú, að á und-
anförnum árum hefur hún ekki gegnt sínu
hlutverki og stjórnin því séð um að halda þær
skemmtanir sem haldnar hafa verið.
Að svo mæltu læt ég þessum annál ársins
1983-1984 lokið.
Jóhannes Jóhannsson, ritari.
Starfsannáll Mímis
1984-1985
Stjórn Mímis veturinn 1984—1985 var skip-
uð eftirfarandi:
Jóhanna M. Einarsdóttir, formaður
Þorsteinn G. Gunnarsson, gjaldkeri
Hulda Sigtryggsdóttir, ritari
Halldóra Sigurðardóttir, meðstjórnandi
Kjartan Árnason, fulltrúi ritnefndar
93