Mímir - 01.04.1986, Page 18

Mímir - 01.04.1986, Page 18
Jón, Magnús, Markús og Pélur. Á 12. og 13. öld urðu kristin áhrif á nafnaforðann þó mun meiri en þá voru tekin upp nöfn eins og Andrés, Benedikt, Jakob, Páll, Margrét og Sesselja (12. öld) og Stefán, Tómas, Katrín og Kristín (13. öld) (sþr. Halldór Halldórsson 1967:55 og Þorsteinn Þorsteinsson 1964:227 — 228). Eftir siðaskiptin fór þiþlíunöfnum stór- fjölgandi hér á landi. Þá fór fólk að tína alls konar nöfn upp úr bókum gamla testamentis- ins og víðar. Einnig var farið að nota ýmis nöfn sem engum hefði dottið í hug að nota í kaþ- ólskum sið. Þannig kemur nafnið Maria t.d. fyrst fyrir í manntalinu 1855 (sbr. Hermann Pálsson 1960:16 — 17). Frá kristnitöku hafa ýmis fleiri tökunöfn ver- ið tekin í notkun hér á landi. Þannig völdu Oddaverjar t.d. börnum sínum nöfn sem lítið eða ekkert höfðu tíðkast áður á íslandi. Nafna- val þeirra minnir á margan hátt á austurnor- ræna siði en þeir hafa einnig tekið upp mörg nöfn sem tíð voru í norsku konungsættinni. Þetta erlenda nafnaval hefur eflaust stafað af sambandi Oddaverja við norsku konungsættina en móðir Jóns Loftssonar úr Odda var Þóra Magnúsdóttir berfætts, og af tíðum utanferðum þeirra (sbr. Halldór Halldórsson 1967:55, Björn Sigfússon 1953:45—47 og Einar Ólafur Sveins- son 1936:190-196). Seldælir (12.-13. öld) munu einnig hafa verið duglegir við að taka upp erlend nöfn en það munu einkum vera kirkjuleg nöfn sem þeir tíðkuðu (sbr. Björn Sig- fússon 1953:47—48). Síðar gætir þess í enn ríkari mæli að sam- band Islendinga við útlönd hafi áhrif á nafna- forðann. Sum norræn nöfn bárust þó ekki hingað fyrr en tiltölulega seint. Um 1400 eru tekin hér upp nokkur þýsk nöfn en þau hafa líklega borist hingað frá Danmörku eða Nor- egi. Þegar lengra líður fara dönsk áhrif á ís- lenska nafnaforðann smám saman vaxandi en það er þó ekki fyrr en á 18. öld sem danskir nafnasiðir fara að hafa hér mikil áhrif. Á 17. öld eru tekin upp dönsku konungsnöfnin Kristján og Friðrik en þau urðu þó ekki vinsæl hér fyrr en á 19. öld (sbr. Hermann Pálsson 1960:17—18 og Þorsteinn Þorsteinsson 1964:227-230). 3.2 Bastarðanöfn í manntalinu 1703 ber langmest á fornum ís- lenskum nöfnum og nöfnum sem tekin voru upp hér á landi á fyrstu öldum kristninnar. Auk þess var hér slangur af þýskum og dönsk- um nöfnum auk nokkurra nafna sem óvíst er hvaðan eru komin (sbr. Ólafur Lárusson 1960:5—6). Frá 1703 til 1855 hefur tala er- lendra nafna aukist mikið og svokallaðra bast- arðanafna er farið að gæta. Þau eru tvenns kon- ar. Annars vegar eru nöfn þar sem tveimur stofnum öðrum íslenskum og hinum erlendum er skeytt saman. Þessi gerð bastarðanafna virð- ist eiga sér gamlar rætur. Þannig koma nöfnin Kristrún og Kriströður fyrir þegar á 13. öld og sonarsonur Jóns Loftssonar í Odda var skírður Jóngeir í byrjun 14. aldar. Algeng nöfn af þessu tægi í dag eru karlmannsnöfnin Guðjón, Sigurjón og Friðjón en þau eru öll frekar ung í málinu og ekkert þeirra kom fyrir í manntalinu 1703 (sbr. Halldór Halldórsson 1967:56 og 1960:143 og Einar Ólafur Sveinsson 1965:182 — 183). Hin gerð svokallaðra bastarða- nafna eru nöfn sem mynduð eru þannig að ís- lenskum stofni og erlendu viðskeyti er skeytt saman. Þessi myndun bastarðanafna er talin vera mun yngri en hin gerðin og í manntalinu 1703 kemur ekkert slíkt nafn fyrir. Halldór Halldórsson (1967:57) segir að nafnið Ólafía sé elst þessara nafna en það nafn er kunnugt úr Stephensens ætt snemma á 19. öld. í manntal- inu 1855 gætir þessara nafna frekar lítið en frá 1855 til 1910 hefur þeim fjölgað mjög mikið (sbr. Halldór Halldórsson 1967:57 og 1960:143 og Hermann Pálsson 1960:24—26). Þessi gerð bastarðanafna mun einkum hafa verið notuð til þess að mynda kvennanöfn af karlanöfnum og karlanöfn af kvennanöfnum. Þó karlanafna eins og Guðrúníus, Liljus, Pálínus, Sesseltus, Sigurlínus o.s.frv. gæti töluvert í manntalinu 1910 þá gætir þess þó meira að kvennanöfn séu mynduð á þennan hátt (sbr. Hagstofa Islands 1915:16—123 og Halldór Halldórsson 18

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.