Mímir - 01.04.1986, Page 41

Mímir - 01.04.1986, Page 41
Smásaga Smitið Horrenglan skalf og nötraði í ræðustólnum. Regnið frussaðist á feitt hárið og gírugir lækir mynduðu rimla á andlitinu. Milli rimlanna glitti í stjörf augun og galopinn munninn, skældar tennur. Annað slagið hljóp flog í kjálk- ana svo regndroparnir írðust af gisnu skegginu. Illa prjónuð peysan var áþekkust sauðkind á sundi. Horrenglan veinaði ámátlega: „Félagar. Haldið vöku ykkar. Nú þegar eru um 60% þjóðarinnar smitaðir og alger yfirráð Sótt- kveikjunnar blasa við. Okkur er lífsnauðsyn að efla og virkja Mótefnið. Lokið fyrir leiðir smitberans. Stöndum saman!“ gólaði horrengl- an í kapp við gnauð vindsins. Hinir sárafáu áheyrendur jörmuðu mæðulega og litu flótta- lega í kringum sig, blóðhlaupnum augum. Einar gekk frá glugganum og hlammaði sér í sófann. Hann gat ekki annað en hugsað urn manngarmana í rigningunni, fálmandi í ör- væntingu út í loftið líkt og þeir væru að reyna að ná taki á björgunarhring. Hvað er á seyði. Af hverju standa þeir í þessu veseni. Ég gat ekki betur séð en að Össi hafi staðið þarna hundrennandi. Hann hefur alltaf verið dálítið pólitískur, en ég get ekki séð neina ástæðu til mótmæla núna. Þeir segja mér að ástandið sé alveg bærilegt í dag og gott betur. Einar tók pípuna af borðinu og sló gætilega úr henni í öskubakkann, en snerist hugur og teygði sig eft- ir vindlakassanum. Ég verð að tala við Össa einhvern daginn. Við höfum svo lítið talast við síðan við lukum nárninu. Hann stóð upp og kveikti á sjónvarpinu. Hvaða rás ætti ég að glápa á. Fréttaskýringar, fræðsluefni, kvik- myndir. Hann stillti umhugsunarlítið á rás D. Skratti notalegt prógramm hjá þeim. Þeir setja hlutina fram á svo einfaldan og skemmtilegan hátt að maður þarf ekki að streða við að hugsa. Það er stundum gott að láta aðra hugsa fyrir sig. Æ já, þetta með hann Össa. Mér finnst stundum að við tölum alls ekki sama málið lengur. Síðast þegar ég hitti hann var hann ægilega alvarlegur og talaði bara um spillingu, græðgi og innrætingu. Meira þruglið. Kannski hefur hann vitkast síðan. Kannski. Þéttvaxni maðurinn í bláu jakkafötunum var í þann veginn að ráðast til atlögu við postulíns- súpudiskinn. Honum var ennþá heitt eftir gufubaðið, blés og rumdi. Lýsistaunrarnir runnu niður eftir holdugu andlitinu h'kt og drottningarhunang, féllu niður á diskinn og mynduðu olíubrák á trjónukrabbasúpunni. Skyndilega klauf silfurskeiðin brákina og steypti sér niður eftir gómsætum krabbabita. Síðan hélt hún upp úr djúpinu með feng sinn. Rétt við yfirborðið mættust ágjörn tunga og krabbinn og snertingin framkallaði nautnaleg búkhljóð frá þéttvaxna manninum. Konan hans kom kjagandi í flegnum ljósblá- um silkislopp, brún og sælleg eftir ljósin. Hún renndi fingrunum frygðarlega gegnum felling- arnar á hálsi mannsins. „Komdu nú í rúmið elsku bangsinn minn“ másaði hún. Bangsinn leit á hana sljóum augum og rumdi: „Eg er að borða elskan og auk þess nenni ég ekki að standa í neinu erfiði í kvöld. Geturðu ekki bara farið í áhaldaherbergið?1 „Jú jú elskan, malaði hún. Ég skal ekki þreyta þig, en mig langar bara stundum að hafa tólin lifandi.“ Einar lagði niður símtólið. Það verður gam- an að hitta Össa aftur, hugsaði hann og fór að búa sig upp á. Hann var Iéttur í skapi og söngl- aði með Frjálsa útvarpinu: „Komdu vinur vertu með eða viltu troðast undir." Þetta var virkilega fallegt maíkvöld. Loksins hafði stytt upp eftir tveggja sólarhringa úr- 41

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.