Mímir - 01.04.1986, Side 52

Mímir - 01.04.1986, Side 52
hitt að mér hefur alltaf þótt þetta mjög heill- andi þegar persónur í skáldskap ganga aftur. Og það eru auðvitað mjög margir rithöfundar sem hafa notfært sér þetta og jafnvel sett það upp í kerfi, Balzac og Faulkner t.d. og nú hér hjá okkur er gott dæmi um þetta Guðbergur Bergsson sem gengur svo langt að persónur úr fyrri bókum hans eru farnar að skrifa sögur nú í seinni tíð. Þetta fyrirbæri ætti einmitt að höfða sérstaklega tii okkar Islendinga út af Is- lendingasögunum. Þar er þetta sama á ferðinni, þó það eigi sér allt aðrar orsakir og kannski einhverja sannfræði á bak við sig upphaflega. En mér finnst gaman að þessu að láta persónur ganga svona aftur. Nú hefur þú farið út á þá braut að gefa nýju bókina þína út sjálfur. Er það framtíðin að höfundar geji bcekur sínar út sjálfir? Það er í sjálfu sér ekkert aðalatriði hver gefur út bók, ef allt er með felldu. Aðalatriðið er náttúrlega að geta lifað af rit- störfunum? Já, og ef gefin er út bók hjá forlagi þá koma svo margir aðilar inn í sem þurfa að fá sinn bita af kökunni að það sem verður eftir handa höf- undinum er svo lítið að það er ekki hægt að lifa af því. Samfélagið er svo lítið að jafnvel bækur sem seljast stórkostlega vel miðað við höfða- tölu, geta ekki gefið af sér nægileg höfundar- iaun. Þess vegna hafa íslenskir rithöfundar hreinlega ekki efni á að láta öðrum eftir hluta af ágóðanum og vegna þess hvað samfélagið er lítið er sjálfsútgáfan alveg gerleg. Það er hægt að dreifa bókum í allar bókabúðir á höfuðborg- arsvæðinu á tveim dögum og út allt land á öðrum tveim dögum. Þetta borgar sig? Já, það margborgar sig. En hefur þetta ekki aukna vinnu í för með sér? Sko vinnan er ekkert óskaplega mikil og þeg- ar maður er farinn að gera svo margt sjálfur af þessari forvinnu eftir að tölvutæknin kom til þá er þetta bara spurning um að stíga loka- skrefið. En svo er það dreifingin. Maður þarf að starfa í einn og hálfan mánuð fyrst og fremst sem sendisveinn. En ef salan er nokkur þá er þetta ákaflega vel launað starf og getur kannski orðið til þess að maður kemst á þann efnahags- grunn að geta snúið sér af alvöru að ritstörfun- um einum í stað þess að þurfa stöðugt að vera á snöpum eftir aukavinnu við þýðingar og hina og þessa textagerð sem til fellur. En sjálfsútgáf- an getur falið í sér ákveðna áhættu, þegar til lengdar lætur gæti svo farið að hún myndi leiða til einhvers konar sjálfsritskoðunar. Setjum svo að einhvern höfund langaði til að gefa út ein- hvern algerlega klikkaðan texta eða hvað mað- ur á að kalla það. Það er hætt við að hann þori það síður, ef hann þarf að standa og falla efna- hagslega algjörlega sjálfur með viðkomandi bók. Það er miklu þægilegra að láta eitthvert forlag út í bæ taka á sig skellinn ef úr verður fiasko, en fiasko eru áreiðanlega mjög þörf fyrir bókmenntirnar. Leiðir aukin sjálfsútgáfa ekki til þess að hinn frjálsi markaður mun alfarið ráða því hvað gefið verður úl afbókum? Jú, og hann hefur nú reyndar löngum gert það, því ýmis forlög á íslandi hafa haft til- 52

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.