Mímir - 01.04.1986, Side 88

Mímir - 01.04.1986, Side 88
Einnig er lífsfirringin ekki eins fyrirferðarmikill þáttur í ljóðagerð hans. Aftur á móti er, eins og Halldór bendir réttilega á, andstyggðin á mark- aðssamfélaginu, þar sem allir hlutir verða að vörum, sameiginleg Jóhannesi og mörgum áhrifamönnum módemismans. Jóhannes reyn- ir þó einnig að smíða kerfi og finna lausnir á vandanum en það var hlutur senr módernist- unum kom ekki til hugar að reyna. Nú er komið að bók þeirri er lengst nær í formbyltingarátt, bókinni Óljóð sem kemur út 1962 (undantekning er þó rímið í 1. hluta Þjóð- vísna). Eins og Jóhann Hjálmarsson bendir réttilega á í bók sinni Islensk nútímaljóðlist10 hefur Jóhannes íhugað hvernig kveða skuli ljóð „á þessari rímlausu skeggöld.’1 Hann veltir síð- an fyrir sér ýmsum ólíkum leiðum í þeim efn- um en er þó alltaf samur við sig. Hann vill slá á frelsistrumbur en ásakar hin ungu skáld, vænt- anlega módernistana sem hann getur ekki sam- samast að neinu ráði, fyrir að vantreysta orð- inu. Menn eiga að leita á vit náttúrunnar frá auðgildi og markaðshyggju að manngildi: . . . er ekki kominn tími til að leita í grasinu eða eru myntfalsararnir búnir að gleypa hinar gullnu töflur (Ljóðasafn VII, bls. 122) Og enn á ný skýtur hann á hina módernísku lífssýn hinna ungu skálda er hann spyr og segir fyrir þeirra hönd: markmið er einl'eldni boðskapur móðgun (Ljóðasafn VII, bls. 134) Jóhannes telur að kveðskapurinn eigi að boða, skáldið að hafa markmið, takmarkið vera betra líf á jörðinni. Menn eiga ekki að gefast upp þrátt fyrir að draumsýnin um Stalín hafi reynst blekking og hún þá þegar verið afhjúp- uð. Hann segir svo í 5. hluta Hrakningsríma: félagar eitt sinn hrópuðum vér öreigar allra landa sameinizt nú sogumst vér inn í allsncegtaþriðjunginn sem liggur á meltunni eins og kyrkislanga meðan hinir tveir þriðjungarnir svelta og hvílíkar allsnœgtir enn á ný lýsir hann yfir andstyggð sinni á markaðsþjóðfélagi Vesturlanda, hinni inni- haldslausu tæknidýrkun og hann spyr: en hvar er sáluhjálpin hvar er hamingjan hversvegna bregðast guðfrœðingarnir svona hversvegna gqfst séra sigurður upp hversvegna forhertist félagi slalín (Ljóðasafn VII. bls. 207) Hér vísar hann eflaust í afsökunarbeiðni Sig- urðar Einarssonar frá Holti eftir afhjúpun Stal- íns og þau hvörf sem segja má að orðið hafi hjá mörgum vinstrimönnum um þetta leyti. Margt er til í þessum orðum Jóhannesar. Þótt Stalín hafi fyrir mörgum verið persónugervingur hins glæsilega sigurs kommúnismans var óþarfi að varpa frá sér hugmyndafræðinni þótt foringinn reyndist ekki sú glæsta fyrirmynd sem menn hefðu helst kosið. Það er nú svo að í þessari bók er yrkisefnið svipað og í hinum fyrri. Fjallað er um sölu landsins í 4. hluta Dœgurlagatexta en í 6. hlut- anum er hinn þríeini guð íslendinga, Atlants- hafsbandalagið, Bandaríkjaher og Efnahags- bandalagið, „vegsamaður“. Þjóðin verður að vakna. Ellegar mun „íslandið sökkva í fyrir- litningu" (2. hluti Draumkvæðis). Jóhannes gleymir ekki heldur drottni sem hann yrkir m.a. um í fyrsta hluta Dœgurlaga- textanna. Minnir það helst á hið gamla kvæði hans Eitt litið og sólskinsbjart Ijóð (1935). Aðrar nryndir má sjá, eins og hina vitifirrtu mynd í 2. hluta Þjóðvisu: djöfullinn glottir við tönn þegar heilagur andi kann ekki að opna fallhlífina (Ljóðasafn VII, bls. 162) í þeim heimi sem guð ferst í, þar sem ekkert markmið finnst og allur þoðskapur er hlægileg- ur, er lítil von um bættara mannlíf. Þó held ég að fá ljóð lýsi betur örvæntingu hans og hinni nýju lífssýn en 4. hluti Draumkvœðis: 10 Jóhann Hjálmarsson. íslenzk nútímaljóðlist, bls. 63. 88

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.