Mímir - 01.06.1997, Blaðsíða 46

Mímir - 01.06.1997, Blaðsíða 46
honum skapraunaði mjpk, en nú sýnisk mér maðrinn inn gprviligasti undir vápnum,..." (332) 3. Um vísur Hávarðar 3.0 Þær vísur sem Hávarður kveður eftir endurreisn sína veita innsýn í hvort tveggja; persónu Hávarðar og ætlun höfundar með verkinu. Það mætti einnig segja að vísurnar gegni mun fjölbreyttara hlutverki þar sem þær skreyta söguna og fylgja jafnvel hefð- inni þannig að forminu til og gera söguna bæði dramatískari og skoplegri í senn.26 Þó að Hávarður byrji ekki að yrkja fyrr en hefndarstundin rennur upp eru þó nokkur atriði sem gefa þennan hæfileika hans til kynna, löngu áður en stund hefndar og hetjuskapar rennur upp. 3.1 Viss líkindi eru milli þeirra feðga Hávarðar og Olafs. Æ ofan í æ er vitnað til æsku Hávarðar og hreystiverka hans á yngri árum. Fyrsti þáttur sögu- nnar hefur einkum þann tilgang að sýna fram á hreysti Ólafs, sem er í fullu samræmi við hreysti- verk Hávarðar á yngri árum, enda er sagt í sögunni að Ólafur „gerisk þá inn efniligasti maðr ... hann var þá átján vetra gamall.“ (304) Á þessum stað í sögunni hefur Ólafur þegar unnið nokkur hreysti- verkin, en þessi klausa, sem lýsir honum rétt fyrir dauða sinn, gefur það til kynna að muni hann lifa sé hann vel þess megnugur að feta í fótspor föður síns og gerast víkingur. Áður hefur Ólafur kveðið vísu (sbr. 297) og þó hún sé ekki dróttkvæð, sýnir hún að hinn óharðnaði unglingur hefur vísi að skáldagáfu í sér, sem vel mætti trúa að faðir hans hafi arfleitt hann að.27 Einnig er bent á að Hávarður geti átt það til að vera orðhvass ef vilji hans stendur til og kemur það fram í ræðu Bjargeyjar þegar hún fær Hávarð til að fara til Laugabóls eftir hina fyrstu legu: „Þat er karlmannligt mál, at hann er til engra harðræðanna er fœrr, at spara þá ekki tunguna at tala þat, er honum mætti gagn verða at;..." (308) 26 Þessi notkun vísnanna í sögunni er í fullu samræmi við niðurstöður Guðrúnar Ingólfsdóttur. 1990: 227 27 Þetta hljómar kannski eins og oftúlkun en feðgar eiga það til að eiga margt sameiginlegt, bæði á hinu andlega sviði og hinu líkamlega, t.d. eru þeir feðgar Egill og Skalla-Grímur æði líkir um margt, þ.á.m. skáldagáfuna, þó að mun meira beri skiljanlega á skáldagáfu Egils. Þótt þetta þurfi ekki að benda til skáldagáfu þá benda þessi orð Bjargeyjar a.m.k. til mælsku Hávarðar, ef hann vill svo við hafa. Ekki þarf að efast um að höfundur hefur ýmist ort vísurnar sjálfur í orðastað Hávarðar, eða fengið þær annarsstaðar frá.28 En þetta sýnir sem fyrr að höfundur er mjög meðvitaður í þessari smíð sinni, eins og hlutverk vísnanna í sögunni er til vitnis um. Ekki eru allar vísur Hávarðar eins en þær sýna þó oft hugarástand Hávarðar, hvort sem um er að ræða alvöru hefndarinnar, eða ánægju yfir atvikum sögunnar eins og t.d. 13. vísa, þar sem Hávarður tekur á móti þeim víga-börnum, og lýsir þar ánægju sinni yfir vígi Hólmgöngu-Ljóts. ( 340-341) Þá er það einkennandi eftir því sem líður á söguna að næstum öll bein ræða sem lögð er í munn Hávarði, er í bundnu máli; t.d. þegar Torfi Valbrandsson spyr Hávarð hvort Þorbjörn væri dauður (6.v. 327), þegar Hávarður segir þeim Torfa og Hallgrími frá bardaganum við Ljót Þjóðreksson (8. v. 330-331), vísur Hávarðar í 13. kafla (10.- 12.v) og einnig 13. vísa Hávarðar. Þar segir: Þeir gera nú svá, ganga fyrir Hávarð. Hann fagnar þeim vel ok spurði tíðenda ok lét sem hann hann hefði ekki heyrt, ... Ok er lokit var rœðu þeira, sprettr Hávarðr upp í móti þeim ok kvað vísu: ... (340-341) I vísu þessari leggur hann mat sitt á á víg Hólmgöngu- Ljóts og óskar þeim piltum langlífts. Þetta hefði höfundur vel getað látið hann gera í óbundnu máli. Sömu sögu er að segja um 5. vísu (323) þar sem Hávarður spáir fyrir um bardagann að Laugabóli og t.d. 12. vísu (335) þar sem Hávarður segir að þeir skuli bíða rólegir, en hann búist þó við eftirmálum vegna víga þeirra; vísa sem vísar fram í söguna, að bardaganum í Otradal. 3.2 Eitt einkenni vísnanna er hvemig þær verða órjúfanlegur hluti textans, þ.e. þeim virðist ekki ætlað að vera vitnisburður, atburðum sögunnar til staðfestingar. Það sést m.a. á því að þegar Hávarð- ur kveður vísur sínar eru þær sjaldnast útskýrðar í 28 Sbr. ÍF VI: xci-xciv, þetta sýnir ll.v. („Hlóðu Herðidraugar“) sérstaklega. 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.