Mímir - 01.06.1997, Page 77

Mímir - 01.06.1997, Page 77
Kristján Albertsson. 1985. Hannes Hafstein - æfisaga. 1. bindi, önnur útgáfa (endurskoðuð frá 1961). Reykjavík. Sveinn Skorri Höskuldsson. 1965. Gestur Pálsson: Ævi og verk. Fyrra bindi. Reykjavík. Þórir Óskarsson. 1987. Undarleg tákn á tímans bárum. Reykjavík. Studia Islandica 45. Ritstjóri Sveinn Skorri Höskuldsson. Útgáfubækur Orðabókar Háskólans íslensk orðtíðnibók, sem gefin var út 1991, er rit um íslenskt nútímamál þar sem birtar eru niðurstöður viðamikilla rannsókna Orðabókar Háskólans á tíðni orða og málfræðiatriða í textum af ýmsu tagi. Ritstjóri bókarinnar var Jörgen Pind og samstarfsmenn hans Friðrik Magnússon og Stefán Briem. Út eru komnar þrjár bækur í ritröðinni Orðfræðirit fyrri alda. Orðabók sem inniheldur flest fágæt, framandi og vandskilin orð er verða fyrir í dönskum bókum eftir Gunnlaug Oddsen kom fyrst út í Kaupmannahöfn árið 1819. Bókin var endurútgefin 1991 og annaðist Jón Hilmar Jónsson útgáfuna ásamt Þórdísi Úlfarsdóttur. Orðabók Björns Halldórssonar, Lexicon islandico-latino-danicum, var fyrst gefin út árið 1814 undir umsjón danska málfræðingsins Rasmusar Kristjáns Rasks. Orðabókin var endurútgefin árið 1992 og sá Jón Aðalsteinn Jónsson um það verk. Orðabók Jóns Árnasonar biskups, Nucleus latinitatis eða Kleyfsi eins og hún er stundum nefnd, kom fyrst út í Kaupmannahöfn árið 1738. Bókin var endurútgefin árið 1994 í umsjón Guðrúnar Kvaran og Friðriks Magnússonar. Bækurnar fást í öllum stærri bókaverslunum, en Hið íslenska bókmenntafélag sér um dreifingu þeirra. 75

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.